Tónlist

Tónleikum Vai seinkað vegna landsleiks Íslands og Kýpur

Freyr Bjarnason skrifar
Ákveðið hefur verið að seinka tónleikum Steve Vai í Silfurbergi í Hörpu 11. október um tvær klukkustundir. Ástæðan er landsleikur Íslands og Kýpur í undankeppni HM í fótbolta, sem verður á Laugardalsvelli kl 18:45 þetta sama kvöld.

Tónleikarnir áttu að fara fram klukkan 20 en verða þess í stað klukkan 22. Samkvæmt tónleikahaldaranum Guðbjarti Finnbjörnssyni tók Vai vel í að seinka tónleikunum um tvo tíma vegna þessa mikilvæga fótboltaleiks.

Vai er þrefaldur Grammyverðlaunahafi og einn mesti gítarsnillingur rokksögunnunar. Hann mun á tónleikunum fylgja eftir nýjustu plötu sinni, The Story of Light. Enn eru til miðar á tónleikana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×