Íslenski boltinn

Ísland með sex mörk í seinni hálfleik í síðustu þremur leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Móherjar Íslands hafa átt fá svör í seinni hálfleik í síðustu þremur leikjum íslenska liðsins.
Móherjar Íslands hafa átt fá svör í seinni hálfleik í síðustu þremur leikjum íslenska liðsins. Mynd/Vilhelm
Íslenska karlalandsliðið vann í gær 2-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvellinum í næstsíðasta leik sínum í riðlakeppni Evrópuhluta undankeppni HM 2014. Bæði mörk íslenska landsliðið komu í seinni hálfleik.

Íslenska landsliðið hefur náð í sjö stig í síðustu þremur leikjum sínum í undankeppninni og í þeim hefur liðið heldur betur verið á skotskónum í seinni hálfleiknum.

Íslenska liðið hefur skorað sex mörk í seinni hálfleik þessara þriggja leikja á móti Sviss (4-4), Albaníu (2-1) og Kýpur og markatala liðsins eftir hálfleiksræður Lars Lagerbäck í haust er 6-1 íslenska liðinu í vil. Markatalan í fyrri hálfleik í þessum leikjum er hinsvegar 2-4 mótherjum íslenska liðsins í vil.

Síðustu þrír leikir Íslands í undankeppni HM 2014:

Sviss - Ísland 4-4

Fyrri hálfleikur: 1-3 fyrir Sviss

Seinni hálfleikur: 3-1 fyrir Ísland

Ísland - Albanía 2-1

Fyrri hálfleikur: 1-1 jafntefli

Seinni hálfleikur: 1-0 fyrir Ísland

Ísland - Kýpur 2-0

Fyrri hálfleikur: 0-0 jafntefli

Seinni hálfleikur: 2-0 fyrir Ísland

Haustleikir Íslands 2013 í undankeppni HM 2014:

Fyrri hálfleikur: 2-4 fyrir mótherja (-2)

Seinni hálfleikur: 6-1 fyrir Ísland (+5)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×