Fótbolti

Stelpurnar æfðu tvisvar í 25 stiga hita í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Íslenska kvennalandsliðið er í Serbíu að undirbúa sig fyrir leik á móti heimastúlkum í undankeppni HM en íslenska liðið verður helst að vinna þennan leik til að eiga alvöru möguleika á að komast upp úr riðlinum.

Það kemur fram á heimasíðu KSÍ að liðið hafi æft tvisvar sinnum í dag en þar kemur fram að æfingaaðstaðan í Belgrad sé frábær.  Veðrið hefur leikið við hópinn og æfingavöllurinn er í frábæru ásigkomulagi. Hitinn í dag var um 25 stig og heiðskírt og er búist við því sama á morgun.  

Spáin á leikdag er öðruvísi en þá er búist við að skýjuðu veðurfari og um 15 stiga hita sem eru góðar fréttir fyrir okkar stelpur.  Leikurinn hefst kl. 14:00 að staðartíma á fimmtudaginn eða kl. 13:00 að íslenskum tíma.

Allir leikmenn eru heilir og tóku fullan þátt á æfingunum í dag,  Á morgun verður æft á keppnisvellinum, FK Obilic Stadium, en hann er í um hálftíma akstursfjarlægð frá hóteli hópsins.  

Hilmar Þór Guðmundsson, nýr starfsmaður KSÍ í Fjölmiðla- og markaðsmálum, er með í för og tók flottar myndir af stelpunum á æfingu í Belgrad í dag. Það er hægt að sjá þessar myndir hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×