Viðskipti erlent

Fólksflótti frá Wikipedia

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Jimmy Wales, stofnandi Wikipedia.
Jimmy Wales, stofnandi Wikipedia. mynd/getty
Wikipedia, alfræðiorðabókin á netinu, á undir högg að sækja að mati sérfræðinga en fjöldi þeirra sem skrifa inn á síðuna hefur minnkað um þriðjung frá árinu 2007.

Wikipedia reiðir sig á vinnuframlag sjálfboðaliða og getur í raun hver sem er skráð sig og hafist handa við að bæta við upplýsingabankann.

Daily Mail greinir frá því í dag að sjálfboðaliðunum hafi fækkað töluvert upp á síðkastið og er breytingum á innsendingarkerfi síðunna kennt um. Til þess að sporna við skemmdarverkum og fíflagangi hafa Wikimedia-samtökin, sem standa á bak við síðuna, tekið í notkun tölvuforrit sem eyða út meintu vafasömu efni en áður var það gert handvirkt. Í kjölfarið hafa fjölmargar alvöru færslur horfið af af síðunni sem forritið hefur talið vera vafasamar.

Þetta, ásamt einföldun innsendingarkerfisins sem hefur haft í för með sér aukningu á grínfærslum, hefur orðið til þess að áhugi á síðunni hefur minnkað með fyrrgreindum afleiðingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×