Fótbolti

Umfjöllun og myndir: Serbía - Ísland 1-2 | Sætt en tæpt í Serbíu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Hvítklæddir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu unnu góðan 2-1 sigur á Serbum í undankeppni HM 2015 í Belgrad í dag.

Hilmar Þór Guðmundsson tók myndir fyrir KSÍ og má sjá þessar myndir hér fyrir ofan.

Hólmfríður Magnúsdóttir fékk tvö ágæt færi á fyrstu tíu mínútunum áður en Ísland náði forystunni. Margrét Lára Viðarsdóttir, sem bar fyrirliðabandið í dag, komst þá inn í sendingu til baka á markvörð Serba. Margrét Lára, gerði það sem hún gerir best, skoraði og kom Íslandi yfir. Mark númer 71 í 94 landsleikjum hjá Margéti Láru sem lék framarlega á miðjunni í dag.

Yfirburðir Íslands í fyrri hálfleiknum voru miklir og áttu Serbarnir ekki skot á mark Þóru Bjargar Helgadóttur í hálfleiknum. Heimakonur björguðu á línu frá Hólmfríði áður en Katrín Ómarsdóttir tvöfaldaði forystuna eftir vel útfærða sókn skömmu fyrir hálfleik.

Allt annað var að sjá til Serba í síðari hálfleik og greinilegt að heimakonur ætluðu að selja sig dýrt. Varnarmenn Íslands komust fyrir skot úr teignum á síðustu stundu eftir um stundarfjórðung en áfram hélt sókn Serbanna.

Eftir misskilning hjá Önnu Björk Kristjánsdóttur og Þóru Björgu Helgadóttur í marki Íslands stal Ilic boltanum og minnkaði muninn fyrir Serba á 67. mínútu. Um var að ræða fyrsta mark Serba í fimm landsleikjum gegn Íslandi.

Í hönd fóru spennuþrungnar 25 mínútur þar sem Ísland komst þó næst því að skora er skot Söru Bjarkar small í stönginni. Serbar fengu nokkrar hornspyrnur en engin dauðafæri. Niðurstaðan 2-1 sigur og þrjú stig til Íslands.

Landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson gerði fimm breytingar á byrjunarliðinu frá því í 2-0 tapinu gegn Sviss. Katrín Jónsdóttir er hætt og Ólína Viðarsdóttir var meidd. Hallbera Gísladóttir fór aftur í stöðu vinstri bakvarðar og Hólmfríður á vinstri kantinn. Þá lék Anna Björk Kristjánsdóttir sinn fyrsta A-landsleik við hlið samherja síns Glódísar Perlu. Sif Atladóttir spilaði einnig nýja stöðu með landsliðinu sem djúpur miðjumaður.

Hvort sem það var breytt uppstilling eða betra hugarfar náðust þrjú stig í Serbíu í dag. Liðið hafði yfirburði í fyrri hálfleik en missti tökin í þeim síðari. Leikmenn liðsins geta þó farið brosandi inn í vetrarfrí og hlakkað til verkefnanna í vor.

Eftir sigurinn er íslenska liðið komið með þrjú stig í þriðja sæti í riðli 3 að loknum tveimur leikjum. Sviss hefur níu stig á toppnum, Ísrael þrjú eins og Ísland, Danir og Serbar eitt stig og Malta er stigalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×