Körfubolti

Paul í banastuði gegn Minnesota

Chris Paul.
Chris Paul.
Chris Paul var sjóðheitur í liði LA Clippers í nótt gegn Minnesota. Hann skoraði 12 stig í röð í leiknum af síðustu 21 stigum Clippers í leiknum skoraði hann 16.

Það var frammistaða hans öðru fremur sem lagði grunninn að góðum sigri Clippers gegn sprækum Úlfum frá Minnesota.

Blake Griffin fór mikinn fyrir Clippers í þriðja leikhluta þar sem hann skoraði 14 af sínum 20 stigum. Það var aftur á móti Paul sem leiddi Clippers alla leið undir lokin.

Kevin Martin var atkvæðamestur í liði Timberwolves með 28 stig og 10 fráköst.

Úrslit:

Charlotte-Brooklyn  95-91

Clevelend-Washington  91-98

NY Knicks-Indiana  96-103

Orlando-Miami  92-120

Philadelphia-Toronto  98-108

Atlanta-Detroit  93-85

Milwaukee-Portland  82-91

Minnesota-LA Clippers  98-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×