Viðskipti erlent

Nýr forstjóri HS Orku

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Ásgeir var meðal annars forstjóri Geysis Green Energy.
Ásgeir var meðal annars forstjóri Geysis Green Energy. Mynd/GVA
Ásgeir Margeirsson mun taka við sem forstjóri HS Orku hf. þann 1. janúar næstkomandi.

Júlíus Jónsson, fráfarandi forstjóri HS Orku og forverans, Hitaveitu Suðurnesja, hefur starfað þar frá árinu 1992 og gegndi áður starfi fjármálastjóra Hitaveitu Suðurnesja frá 1982.

Ásgeir hefur setið í stjórn HS Orku og Hitaveitunni frá 2007 og hann hefur verið stjórnarformaður HS Orku frá 2010.

Hann er menntaður byggingarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð.

Ásgeir var meðal annars forstjóri Geysis Green Energy og hefur starfaði í orkuiðnaði í yfir 20 ár og komið að fjölmörgum verkefnum á Íslandi og erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×