Viðskipti erlent

Blockbuster í Bretlandi lokar 62 myndbandaleigum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Blockbuster lokar væntanlega endanlega á næstunni í Bretlandi.
Blockbuster lokar væntanlega endanlega á næstunni í Bretlandi.
Blockbuster í Bretlandi hefur nú tilkynnt að fyrirtækið hafi lokað 62 myndbandaleigum og þar með hafa 427 einstaklingar misst vinnuna.

Eins og staðan er í dag eru enn 91 myndbandaleigur á vegum Blockbuster í Bretlandi en þeim gæti einnig verið lokað á næstu misserum.

Því gætu alls 1235 manns misst vinnu sína en Blockbuster í Bandaríkjunum lokaði öllum sínum myndbandaleigum í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×