Viðskipti erlent

Hægt að skoða eldri Snapchat skilaboð

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Snapchat hefur gert þær breytingar á appinu að framvegis verður hægt að skoða skilaboð í annað skipti. Hingað til hefur aðeins verið hægt að skoða hver skilaboð á Snapchat einu sinni.

Nú verður hægt að velja ein gömul skilaboð á hverjum degi  til að skoða aftur. Þessar breytingar verða væntanlega til þess að hugsar fólk sig betur um áður en það sendir skilaboð.

Þetta virkar bara fyrir þann sem móttekur skilaboðin, sá sem sendir þau getur ekki skoðað þau aftur. Í frétt Gizmodo um málið kemur fram að eftir sem áður verði skilaboðunum eytt af miðli (e. server) Snapchat eftir fyrstu skoðun.

Fleiri breytingar eru hjá Snapchat. Bætt hefur verið við filterum líkt og Instagram hefur og fleiri litum í skilaboðin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×