Fótbolti

Lagerbäck: Eiður var jákvæður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson aðstoðarþjálfari fara yfir málin í gær.
Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson aðstoðarþjálfari fara yfir málin í gær. Fréttablaðið / Pjetur
Íslenska landsliðið spilar æfingaleik gegn Rússum á Marbella á Spáni þann 6. febrúar næstkomandi. Leikurinn er liður í undirbúningi landsliðsins fyrir leikinn gegn Slóvenum í undankeppni HM. Sá leikur fer fram í lok mars.

Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari valdi ekki þá þrjá leikmenn sem verða í banni í þeim í hópinn núna. Það eru Kári Árnason, Grétar Rafn Steinsson og Rúrik Gíslason.

Frá því Lagerbäck tók við liðinu hefur hann aðeins einu sinni valið Eið Smára Guðjohnsen í landsliðshóp. Hann valdi hann í annað sinn í gær en Eiður hefur verið að leika mjög vel í Belgíu í vetur.

„Ég hitti Eið í Belgíu um síðustu helgi og ræddi við hann um landsliðið. Hann var jákvæður og er til í að koma aftur í hópinn. Við sjáum svo til hvað gerist. Eiður er frábær leikmaður og það var ánægjulegt að heyra hvað hann var jákvæður í okkar spjalli," sagði Svíinn á blaðamannafundi Knattspyrnusambandsins í gær.

Rússneska landsliðið er eitt sterkasta landslið heims og situr í níunda sæti á heimslista FIFA. Það er undir stjórn Ítalans Fabio Capello. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, greindi frá því að vinur á Ítalíu hefði komið að máli að þessi leikur gæti farið fram. Hvaða vinur það var kom þó ekki fram. „Það er frábært að spila gegn Rússum. Við viljum spila gegn bestu liðunum."

Það er ekki bara Eiður Smári sem snýr aftur í hópinn. Kolbeinn Sigþórsson er einnig kominn til baka eftir erfið meiðsli.

„Það er frábært að fá Kolbein aftur inn í hópinn. Við þurfum hann. Kolbeinn er að æfa af fullum krafti með Ajax og er orðinn 100 prósenta góður. Það er því ánægjuefni að hann standi okkur aftur til boða."

Lagerbäck segist gjarnan vilja vera kominn með fleiri stig í undankeppni HM en hann fer ekkert í grafgötur með að stefnan sé sett á annað sæti riðilsins. Það sæti gefur rétt til þess að keppa í umspili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×