Fótbolti

Stóra stundin er runnin upp hjá strákunum

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Íslensku landsliðsstrákarnir á æfingu í Zagreb í gær. Framtíð liðsins á HM 2014 ræðst í Maksimir-leikvanginum í kvöld.
Íslensku landsliðsstrákarnir á æfingu í Zagreb í gær. Framtíð liðsins á HM 2014 ræðst í Maksimir-leikvanginum í kvöld. Mynd/Vilhelm
„Það væri hálfgerður skandall ef lið eins og Króatía kæmist ekki á HM. Við erum auðvitað bara í fyrsta sinn í umspili um að komast á HM. Við höfum engu að tapa. Pressan er á þeim,“ segir landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson. Miðjumaðurinn verður í eldlínunni með karlalandsliði Íslands í knattspyrnu er liðið mætir Króötum í hreinum úrslitaleik um það hvor þjóðin öðlast þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í Brasilíu næsta sumar.

Eftir markalaust jafntefli er ljóst að sigur eða jafntefli myndi tryggja íslenska liðinu farseðilinn til Brasilíu. Verði jafnteflið markalaust verður framlengt og í kjölfarið gripið til vítaspyrnukeppni.

„Þótt það sé skrýtið að segja það þá erum við bara níutíu mínútum frá því að komast á HM,“ segir Gylfi Þór sem reyndi að halda sig á jörðinni í samtölum við blaðamenn ytra í gær. Þá list kunna fáir betur en landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck. Svo virðist sem blóðið renni varla í Svíanum sem fimm sinnum fór með sænska karlalandsliðið á stórmót.

„Þegar við komum út á völl fyrir leikinn þá verður auðvitað mikil spenna. Ég tel mig hafa lært í gegnum tíðina að takist mér að halda einbeitingu og ró minni geri ég betur í starfi mínu sem þjálfari,“ segir sænski skógarbóndasonurinn sem vonast til að skrifa nýjan kafla í sögu Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×