Fótbolti

32 ár síðan að engin Norðurlandaþjóð var á HM í fótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svíinn Zlatan Ibrahimovic er hugsanlega skærasta knattspyrnustjarnan sem missir af HM í Brasilíu næsta sumar.
Svíinn Zlatan Ibrahimovic er hugsanlega skærasta knattspyrnustjarnan sem missir af HM í Brasilíu næsta sumar. Mynd/AFP
FótboltiNú er orðið ljóst hvaða 32 þjóðir taka þátt í tuttugustu heimsmeistarakeppninni í fótbolta sem fer fram í Brasilíu næsta sumar en síðustu þjóðirnar tryggðu sér farseðilinn í umspilsleikjum í vikunni.

Íslenska karlalandsliðið hefur aldrei verið svona nálægt því að tryggja sér sæti á HM og var í raun næst því af Norðurlandaþjóðunum að komast á HM. Svíar voru líka í umspilinu en töpuðu báðum leikjum sínum á móti Cristiano Ronaldo og félögum í Portúgal.

Það verða því engar frændþjóðir á HM en þetta er í fyrsta sinn í 32 ár sem engin Norðurlandaþjóð nær að komast í gegnum undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Danir, Svíar eða Norðmenn hafa verið með á síðustu sjö heimsmeistaramótum eða allt frá því að danska dínamítið sló í gegn á HM í Mexíkó 1986. Danir voru einu fulltrúar Norðurlandanna á HM í Suður-Afríku fyrir að verða fjórum árum.

Svíar og Danir voru næstir því að komast á HM á Spáni 1982. Svíar voru aðeins einu stigi á eftir Norður-Írum í sínum riðli og það dugði ekki Dönum að sigra verðandi heimsmeistara Ítala með þremur mörkum gegn einu á lokasprettinum því þeir enduðu fjórum stigum á eftir Ítölum. Ísland endaði þá í 4. sæti í sínum riðli (á undan Tyrklandi) en bæði Finnar og Norðmenn urðu neðstir í sínum riðli.

Norðurlandaþjóðir á síðustu HM í fótbolta

HM 2014 - Engin

HM 2010 - Danmörk (24. sæti)

HM 2006 - Svíþjóð (14. sæti), Svíþjóð (13. sæti)

HM 2002 - Danmörk (10. sæti)

HM 1998 - Danmörk (8. sæti), Noregur (15. sæti)

HM 1994 - Svíþjóð (3. sæti), Noregur (17. sæti)

HM 1990 - Svíþjóð (21. sæti)

HM 1986 - Danmörk (9. sæti)

Hm 1982 - Engin

Þessar þjóðir verða á HM 2014

Evrópa (13): Holland, Ítalía, Belgía, Sviss, Þýskaland, Rússland, Bosnía, England, Spánn, Grikkland, Króatía, Portúgal og Frakkland.

Suður-Ameríka (6): Brasilía, Argentína, Kólumbía, Síle, Ekvador og Úrúgvæ.

Norður- og Mið-Ameríka (4): Kosta Ríka, Bandaríkin, Hondúras og Mexíkó.

Asía og Eyjaálfa (4): Japan, Ástralía, Íran og Suður-Kórea.

Afríka (5): Nígería, Fílabeinsströndin, Kamerún, Gana og Alsír.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×