Viðskipti erlent

Sala lúxusbíla er líflegri en áður

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Þessi var nýverið tekinn til kostanna í umfjöllun Bílablaðs Fréttablaðsins.
Þessi var nýverið tekinn til kostanna í umfjöllun Bílablaðs Fréttablaðsins. Fréttablaðið/Vilhelm
Framleiðendum dýrari bifreiða gengur þessi misseri vel að selja varning sinn, sér í lagi í Asíu, að því er fram kemur í umfjöllun IFS Greiningar.

Vísað er til nýbirtra talna BMW um að framleiðsla í nóvember hafi verið tæp 175 þúsund ökutæki og uppsöfnuð framleiðsla á árinu sé komin í tæplega 1,8 milljónir ökutækja.

„Báðar þessar tölur eru met í samanburði við eldri tímabil í sögu fyrirtækisins,“ segir í umfjöllun IFS.- óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×