Tónlist

Allar hljómsveitirnar spila nýtt efni

Ugla Egilsdóttir skrifar
Úlfur Alexander Einarsson er í hljómsveitinni Oyama. Magnus Andersen tók myndina.
Úlfur Alexander Einarsson er í hljómsveitinni Oyama. Magnus Andersen tók myndina.
Hljómsveitirnar Halleluwah, Hljómsveitt og Oyama efna til tónleika á miðvikudagskvöld á skemmtistaðnum Paloma. „Tilefni tónleikanna er að Rakel Mjöll Leifsdóttir í dúettinum Halleluwah er á Íslandi,“ segir Úlfur Alexander Einarsson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Oyama.

„Rakel býr úti í Brighton og þau í hljómsveitinni reyna að nýta allan þann tíma sem Rakel eyðir á Íslandi sem best, þannig að við ákváðum að skella í þessa tónleika saman á meðan hún er hér,“ segir Úlfur.

„Við í Oyama erum að fara til Hollands á tónlistarhátíðina Eurosonic og við ætlum að prófa nýtt efni á þessum tónleikum. Við spilum einungis nýtt efni af plötu sem við erum að semja núna sem er okkar fyrsta breiðskífa.

Halleluwah eru að vinna að sinni fyrstu plötu líka. Ég held að allar hljómsveitirnar komi til með að spila nýtt frumsamið efni.

Þetta er síðan haldið á nýjasta skemmtistað bæjarins, Paloma. Hann opnaði rétt fyrir jól, og hentar vel til tónleikahalds en hefur lítið verið auglýstur.“

Tónleikarnir verða á Paloma miðvikudaginn 8. janúar klukkan 21:00. Paloma er við Naustina 1-3, fyrir ofan skemmtistaðinn The Dubliners.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×