Viðskipti erlent

JPMorgan semur við ríkið vegna Madoff

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Madoff var í júní 2009 dæmdur í 150 ára fangelsisvist.
Madoff var í júní 2009 dæmdur í 150 ára fangelsisvist. Mynd/Úr safni
Bandaríkis bankinn JPMorgan Chase hefur samþykkt að greiða bandaríska ríkinu 2 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 232 milljarða króna. Þetta gerir bankinn til að komast hjá málshöfðun. The New York Times greinir frá þessu.

Málið er tilkomið vegna fjársvika Bernard Madoff sem nýtti sér bankann við athæfi sín.

Madoff var í júní 2009 dæmdur í 150 ára fangelsisvist vegna fjársvikamálsins en það var eitt stærsta sinnar tegundar á Wall Strett. Hann var ákærður fyrir að hafa dregið að sér allt að 50 milljarða dollara með svikum á tuttugu ára tímabili.

Madoff rak umfangsmikla fjársvikamillu og beitti svokölluðu Ponzi-svindli til að ná fé út úr viðskiptavinum sínum sem fólst í því að greiða fjárfestum arð með fé sem aðrir fjárfestar höfðu lagt til fyrirtækis hans.

Heimildir New York Times herma að bankinn muni greiða 1 milljarð Bandaríkjadala til saksóknara í Manhattan og afganginn til ríkisins sem mun hafa ákveðið að eyrnamerkja hluta fjársins til að greiða fórnarlömbum Madoff bætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×