Ólafur: Ég náði hrollinum úr mér

"Þetta var flottur leikur og virkilega gaman að fá að spila svona mikið. Mér fannst ég spila ágætlega. Ég kom með mitt sjálfstraust sem ég hef fengið í Svíþjóð og reyndi að spila minn leik og aðlagast liðinu," sagði Ólafur hógvær en hann var valinn maður leiksins.
Þar sem Ólafur fór mikinn gat Aron landsliðsþjálfari leyft sér að hvíla Aron Pálmarsson nánast allan leikinn en hann þurfti sárlega á hvíld að halda.
"Okkur veitti ekkert af því að auka breiddina í liðinu. Aron og Arnór báðir þreyttir og lemstraðir. Það hefur verið mikið álag á þeim og mikið eftir. Það var því lífsnauðsynlegt að spila á liðinu.
"Það var sérstaklega ánægjulegt að halda gæðunum í liðinu þó svo við höfum rúllað því mikið. Þetta sýnir bara gæðin í okkar liði og eigum að vera stoltir af því.
"Það er alltaf erfitt að koma inn í nokkrar mínútur og betra að fá nánast heilan leik. Ég náði hrollinum úr mér núna. Nú verður kannski auðveldara fyrir mig að koma inn í framhaldinu."
Tengdar fréttir

Björgvin: Vörnin gerði mína vinnu auðveldari
Björgvin Páll Gústavsson átti sannkallaðan stórleik gegn Austurríki í kvöld en það virtist á tímabili vera ómögulegt að skora gegn honum.

Patrekur: Naut þess ekki að horfa á Ísland spila í kvöld
Patrekur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Austurríkis, var nokkuð léttur er blaðamaður Vísis hitti á hann eftir leikinn gegn Íslandi í kvöld. Hann sagði að sitt lið hefði einfaldlega tapað fyrir betra liði.

Aron: Allir gáfu allt sitt í leikinn
Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska landsliðsins, var hæstánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum gegn Austurríki í kvöld.

Frábær sigur á Austurríki | Myndir
Strákarnir eru komnir á beinu brautina í milliriðlakeppninni í Herning á EM í Danmörku eftir glæsilegan sigur á Austurríki í dag, 33-27.

Sverre: Gáfum tóninn strax í byrjun
"Við vorum svakalega einbeittir. Undirbjuggum okkur vel og ætluðum okkur aldrei neitt annað en sigur," sagði Sverre Andreas Jakobsson eftir sigurinn stóra á Austurríki.

Aron Kristjánsson: Gat ekki beðið um það betra
Landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson var að vonum kátur eftir sigurinn á Austurríki enda gekk nánast allt upp hjá Íslandi í leiknum.

Danir hafa áhyggjur af Íslendingum
"Íslensk aðvörðun,“ segir í umfjöllun danska ríkisútvarpsins á vef um sigur Íslands á Austurríki á EM í handbolta.

Arnór Þór: Það var smá skrekkur í mér
Hornamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson kom inn í íslenska hópinn í morgun í stað nafna síns Atlasonar. Reyndar er ekki útilokað að Arnór Atlason komi aftur inn í hópinn síðar.

Umfjöllun: Austurríki - Ísland 27-33 | Patti átti ekkert svar
Ísland vann frábæran sigur á Austurríki í fyrsta leik milliriðlakeppninnar á EM í Danmörku. Strákarnir gerðu út um leikinn með frábærum fyrri hálfleik.

Guðjón Valur með hundrað prósent skotnýtingu í öðrum leiknum í röð
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, nýtti öll sjö skotin sín í sigrinum á Austurríki í kvöld en þetta var fyrsti leikur strákanna okkar í milliriðli eitt á Evrópumótinu í handbolta í Danmörku.