NBA í nótt: Miami lagði San Antonio Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. janúar 2014 00:00
Liðin sem léku til úrslita í NBA-deildarinnar á síðasta tímabili mættust í Miami í nótt þar sem að heimamenn höfðu betur. Miami vann San Antonio, 113-101, þar sem Chris Bosh skoraði 24 stig og nýtti níu af tíu skotum sínum í leiknum. LeBron James var með átján stig og Mario Chalmers sextán. Wade var notaður sem varamaður í leiknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli í hné að undanförnu. Hann var síðast varamaður í leik með Miami árið 2008 en þetta var þriðji sigur liðsins í röð.Tim Duncan var með 23 stig fyrir San Antonio og Boris Diaw fimmtán.Golden State vann Portland, 103-88. Stephen Curry átti stórleik og skoraði 38 stig, gaf átta stoðsendingar og tók sjö fráköst. Heimamenn spiluðu frábær vörn í leiknum og voru komnir með 22 stiga forskot í fjórða leikhluta. Stigahæstur hjá Portland var Wesley Matthews með 21 stig. Brooklyn vann Boston, 85-79, á útivelli en þetta var í fyrsta sinn sem að Paul Pierce og Kevin Garnett sneru aftur á sinn gamla heimavöll eftir að þeir gengu til liðs við Brooklyn í sumar. Þeir voru sérstaklega heiðraðir fyrir leik en þeir höfðu hægt um sig í leiknum og skoruðu hvor sex stig. Stigahæstur í sigri Brooklyn var Andray Blatche með sautján stig. Þetta var níundi sigur Brooklyn í síðustu tíu leikjum liðsins en hitt New York liðið, Knicks, vann sigur á LA Lakers á heimavelli, 110-103. Carmelo Anthony skoraði 35 stig en hann var með 62 stig í leik liðsins aðfaranótt laugardags.Úrslit næturinnar: Miami - San Antonio 113-101 New York - LA Lakers 110-103 New Orleans - Orlando 100-92 Cleveland - Phoenix 90-99 Boston - Brooklyn 79-85 Dallas - Detroit 116-106 Golden State - Portland 103-88 Sacramento - Denver 117-125
NBA Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira