Svissneskur úrslitaleikur í Melbourne? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. janúar 2014 22:55
Svo gæti farið að tveir svissneskir tenniskappar leiki til úrslita í einliðaleik karla á Opna ástralska meistaramótinu í tennis. Í morgun hafði Stanislaw Wawrinka betur gegn Tékkanum Thomas Berdych og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleik á stórmóti í fyrsta sinn á ferlinum. Wawrinka hefur lengi staðið í skugga landa síns Roger Federer sem leikur gegn efsta manni heimslistans, Spánverjanum Rafael Nadal, í hinni undanúrslitaviðureigninni á morgun. Wawrinka er í sjöunda sæti heimslistans og hafði betur í æsispennandi viðureign, 6-3, 6-7, 7-6 og 7-6. Hann virðist til alls líklegur í úrslitunum enda sló hann Novak Djokovic, meistara síðustu þriggja ára, úr leik í síðustu umferð. „Það væri ótrúlegt [að mæta Federer í úrslitunum],“ sagði Wawrinka eftir sigurinn í morgun. „Roger er besti leikmaður allra tíma. Hann sendi mér SMS í gær og sagðist vera ánægður með að Sviss ætti tvo leikmenn í undanúrslitum í fyrsta sinn.“ Þetta er fyrsti úrslitaleikur Wawrinka á stórmóti en hann komst í undanúrslit á Opna bandaríska meistaramótinu í fyrra.
Tennis Tengdar fréttir Æsispenna þegar Wawrinka lagði Djokovic Svisslendingurinn Stanislas Wawrinka tryggði sér sæti í undanúrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir maraþonviðureign við Serbann Novak Djokovic. 21. janúar 2014 12:33 Federer mætir Nadal í undanúrslitum Svisslendingurinn Roger Federer sýndi allar sínar bestu hliðar gegn Andy Murray í átta manna úrslitum á Opna ástralska mótinu í tennis í dag. 22. janúar 2014 11:58 Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Chelsea fylgist með 16 ára brasilískum varnarmanni Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu „Held ég muni pakka henni saman“ City-menn búnir að áfrýja Óðinn heim í KR Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sjá meira
Æsispenna þegar Wawrinka lagði Djokovic Svisslendingurinn Stanislas Wawrinka tryggði sér sæti í undanúrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir maraþonviðureign við Serbann Novak Djokovic. 21. janúar 2014 12:33
Federer mætir Nadal í undanúrslitum Svisslendingurinn Roger Federer sýndi allar sínar bestu hliðar gegn Andy Murray í átta manna úrslitum á Opna ástralska mótinu í tennis í dag. 22. janúar 2014 11:58