„Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. október 2026 13:53 Arnar Gunnlaugsson var varkár í yfirlýsingum fyrir leikinn. Vísir / Getty Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sat fyrir svörum á blaðamannafundi Íslands í dag en íslenska liðið mætir Búlgaríu á Laugardalsvelli á morgun. „
Þetta verður erfiður leikur gegn særðu dýri. Særð dýr geta verið hættuleg sagði Arnar í upphafi fundar en Búlgaría hefur ekkert getað í upphafi keppninnar. Liðið tapaði gegn Lúxemborg og gerði jafntefli gegn Eistum. Þjálfarinn sagði svo af sér. Það er af sem áður var í búlgörskum fótbolta. „Ég býst ekki við neinni hallarbyltingu hjá þeim. Nýi þjálfarinn fær bara tvo leiki og því ólíklegt að mikið breytist þannig séð. Við þurfum að lesa snemma í þeirra leik en mögulega fara þeir í það sem þeir eru vanir að gera,“ segir Arnar. Það er búið að selja um 4.000 miða á leikinn á morgun og þjálfarinn vonast til þess að liðið skemmti fólkinu. „Ég á von á stemningu og var ánægður með mætinguna líka síðast. Það er undir okkur komið að gíra áhorfendur upp með kraftmiklum leik. Ég held að fólkið okkar skynji að við þurfum hrikalega mikið á þeim að halda. Að það komi okkur yfir lokametrana,“ segir þjálfarinn en yrði það stórslys að ná ekki að taka öll þrjú stigin í leiknum? „Ég held að við þurfum að bera virðingu fyrir þessu landsliðsumhverfi. Þetta er erfiður bransi. Búlgarar hafa verið á niðurleið síðustu ár en það eru margir góðir menn þarna sem geta meitt okkur. Hugarfar okkar manna skiptir máli. Að menn séu ekki of miklir töffarar og vanmeta lið Búlgara.“
KSÍ Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Sjá meira