Tónlist

Jay Z kom Björk á óvart

Meðlimur hljómsveitar Jay Z lék brot úr lagi Bjarkar og var hún viðstödd tónleikana.
Meðlimur hljómsveitar Jay Z lék brot úr lagi Bjarkar og var hún viðstödd tónleikana. Nordicphotos/Getty
Jay Z kom okkar einu sönnu Björk á óvart á tónleikum í gærkvöldi í New York þegar að brot úr lagi hennar, Pagan Poetry var spilað á tónleikunum. Píanóleikari í hljómsveit Jay Z lék brot úr laginu.

Björk sem var á tónleikunum deildi þessari frétt á facebook-síðu sinni og birti myndband í leiðinni af atvikinu, þegar lag hennar var leikið. Jay Z fékk áhorfendur til að hylla hana með fagnaðarlátum þegar hann sá að Björk okkar var á meðal áhorfenda.

Björk á óteljandi aðdáendur út um allan heim og er Jay Z án nokkurs vafa mikill aðdáandi hennar og hefur því nýtt tækifærið vel.

Jay Z er sem stendur á tónleikaferðalagi um Bandaríkin að kynna nýjustu plötuna sína Magna Carta Holy Grail. Hann mun einnig koma fram á Grammy verðlauna-hátíðinni ásamt eiginkonu sinni Beyonce Knowles sem fer fram næstkomandi sunnudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×