Viðskipti erlent

Orðrómur um samruna Apple og Tesla

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tesla S hefur selst í 20 eintökum hér á landi.
Tesla S hefur selst í 20 eintökum hér á landi. VISIR/GVA
Verð hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla motors hækkuðu um 3% á mörkuðum í gær eftir að orðrómur komst á kreik um mögulegan samruna fyrirtækisins og Apple.

Þetta var í fyrsta sinn sem verð bréfanna fer yfir 200 dollara.

Áhugi fjárfesta kviknaði eftir sögusagnir af fundi Elons Musk, annars stofnanda Tesla motors og Adrians Perica formanns samrunadeildar Apple.



Fundurinn fór fram í upphafi árs 2013 en kom fyrst upp á yfirborðið í vikunni í umfjöllun San Francisco Chronicle þar sem vísað var til ónafngreindra heimildamanna.

Apple hefur þó ekki verið þekkt fyrir að reiða fram háar fjárhæðir í fjárfestingum sínum ólíkt keppinautum þeirra hjá Google og Microsoft.

Markaðsvirði Tesla stendur nú í rúmlega 25 milljörðum bandaríkjadala, ríflega 2800 milljörðum íslenskra króna og því er ljóst að Apple þarf að bregða út af vananum ef til samrunans á að koma.

Líklegra verður þó að teljast að samstarf milli fyrirtækjanna sé í kortunum frekar en samruni. Musk tilkynnti fyrr í ár að Tesla hygðist byggja stærsta rafhlöðuver heims með aðkomu annarra fyrirtækja og hefur verið gert ráð fyrir því að Apple sé eitt þeirra.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Financial review.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×