Körfubolti

NBA í nótt: Houston náði fram hefndum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Houston fór illa með Indiana, efsta liðið í austrinu, sem tapaði sínum þriðja leik í röð í NBA-deildinni í nótt.

Houston vann örugglega, 112-86, en liðið gerði út um leikinn í þriðja leikhluta er James Harden og félagar skoruðu 38 stig. Harden og Dwight Howard gátu svo leyft sér að hvíla í fjórða leikhluta.

Harden var með 28 stig, þar af sextán í þriðja leikhluta þegar Houson komst í 29 stiga forystu.

Þar með náði Houston að hefna fyrir 33 stiga tap í leik liðanna í desember síðastliðnum en það var stærsta tap Houson á leiktíðinni til þessa.

„Það var það eina sem við töluðum um í hverju einasta leikhléi. Við vildum ná fram hefndum,“ sagði Howard eftir leikinn.

David West skoraði fimmtán stig fyrir Indiana og tók þar að auki tíu fráköst. Liðið hafði ekki tapað þremur leikjum í röð fyrir leik næturinnar.

Indiana er þó eina liðið í NBA-deildinni sem er öruggt með sæti í úrslitakeppninni en Houston er í þriðja sæti austurdeildarinnar.



Golden State vann Atlanta, 111-97, en þetta var fimmta tap síðarnefnda liðsins í röð og þrettánda tapið í síðustu fjórtán leikjum liðsins.

Atlanta skoraði ekki fyrr en tæpar sjö mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta og það reyndist of mikið. Liðið heldur þó enn í vonina um að komast í úrslitakeppnina í vor.

David Lee skoraði átján stig fyrir Golden State og Jermaine O'Neal suatján. Steph Curry var með þrettán stig.



Boston vann Brooklyn, 91-84, og stöðvaði þar með fjögurra leikja sigurgöngu Brooklyn. Rajon Rondo var með 20 stig fyrir Boston sem leiddi frá fyrstu mínútu.

Jason Collins spilaði ekki með Brooklyn í fyrsta sinn eftir að hann samdi við liðið í lok febrúar. Hann er fyrsti opinberlegi samkynhneigði leikmaður deildarinnar.

Úrslit næturinnar:

Chicago - Memphis 77-85

Charlotte - Cleveland 101-92

Toronto - Sacramento 99-87

Boston - Brooklyn 91-84

New York - Utah 108-81

Minnesota - Detroit 114-101

New Orleans - Milwaukee 112-104

Dallas - Portland 103-98

Denver - LA LAkers 134-126

Houston - Indiana 112-86

Golden State - Atlanta 111-97

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×