Durant skoraði 51 stig en Westbrook meiddist | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. mars 2014 11:00
Oklahoma City Thunder vann nauman útisigur á Toronto Raptors 119-118, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt eftir tvíframlengdan leik.Kevin Durant skoraði sigurkörfuna 1,7 sekúndum fyrir leikslok en hann skoraði í heildina 51 stig í leiknum auk þess sem hann tók 12 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Oklahoma er í mikilli baráttu við San Antonio um efsta sætið í vesturdeild NBA en liðið varð fyrir áfalli í nótt þegar leikstjórnandinn Russell Westbrook haltraði af velli í þriðja leikhluta. San Antonio gefur ekkert eftir í baráttunni en liðið vann sinn tólfta leik í röð í nótt er það lagði Sacramento Kings auðveldlega á útivelli, 99-79. Að vanda var liðsframlagið í góðu lagi hjá Spurs en enginn einn tók af skarið. MarcoBelinelli kom sterkur inn af bekknum og var stigahæstur með 17 stig en annars skoruðu fjórir af fimm byrjunarliðsmönnum San Antonio og tveir varamenn yfir tíu stig. Spurs er með 52 sigra og 16 töp á toppi vesturdeildarinnar en Oklahoma City kemur þar á eftir með 51 sigur og 18 töp og er einum og hálfum leik á eftir toppliðinu. Indiana er efst í austrinu með 51 sigur og 18 töp og Miami Heat er þremur leikjum á eftir með 47 sigra og 20 töp. Tíu flottustu tilþrif næturinnar Bæði Indiana og Miami unnu sína leiki í nótt. Indiana átti ekki í teljandi vandræðum með Chicago Bulls en liðið vann sterkan heimasigur, 91-79. Frábær 19-0 kafli í þriðja leikhluta lagði grunninn að sigrinum. Allir byrjunarliðsmenn Indiana skoruðu yfir 10 stig en stigahæstur var varamaðurinn LuisScola sem skoraði 19 stig og tók 6 stoðsendingar. Paul George var með þrefalda tvennu en hann skoraði 10 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Hér að ofan má sjá brot af tilþrifum Kevins Durants í nótt og hér að neðan eru svipmyndir frá þrennunni sem PaulGeorge náði.Úrslit næturinnar: Indiana Pacers - Chicago Bulls 91-79 Philadelphia 76ers - New York Knicks 92-93 Toronto Raptors - Oklahoma City Thunder 118-119 Atlanta Hawks - New Orleans Pelicans 105-111 Brooklyn Nets - Boston Celtics 114-98 Miami Heat - Memphis Grizzlies 91-86 Dallas Mavericks - Denver Nuggets 122-106 Phoenix Suns - Detroit Pistons 98-92 Sacramento Kings - San Antonio Spurs 79-99 Los Angeles Lakers - Washington Wizards 107-117Staðan í deildinni.
NBA Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira