Jón Arnór töframaður áfram ásamt Arnari og Agnesi 30. mars 2014 23:48
Spennan var mikil í kvöld þegar sjö atriði bitust um að verða á meðal þeirra sem keppa um milljónirnar tíu sunnudagskvöldið 27. apríl í hæfileikakeppninni Ísland got Talent. Keppni kvöldsins var sýnd út í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2. Í fyrsta sinn voru það áhorfendur heima í stofu sem höfðu sitt að segja í símakosningu um það hvað atriði fengju brautargengi ásamt dómnefndinni. Hinn sjö ára töframaður Jón Arnór Pétursson fór á kostum, líkt og í undankeppninni, og tryggði sér sæti í úrslitakvöldinu. Spennan var svo rafmögnuð þegar dómnefndin skar úr um hvort tónlistarfólkið Arnar Logi Hákonarson og Agnes Sólmundsdóttir eða dansparið efnilega Elvar Kristinn Gapunay og Sara Lind Guðnadóttir kæmust áfram ásamt Jóni Arnóri. Fór svo að dómnefndin greiddi Arnari og Agnesi þrjú atkvæði gegn einu atkvæði dansparsins tólf ára sem þurfti því að halda heim á leið. Arnar og Agnes sögðu í samtali við Auðunn Blöndal allt eins hafa átt von á því að komast í úrslitin. Jón Arnór sagði hins vegar að það hefði komið sér á óvart. Að viku liðinni kemur svo í ljós hvaða tvö atriði tryggja sér þátttökuréttinn í úrslitakvöldinu og möguleikann á tíu milljóna króna peningaverðlaununum. Að ofan má sjá frammistöðu Jóns Arnórs úr undankeppninni. Frammistöðu Arnars og Agnesar úr undankeppninni má sjá hér að neðan.
Ísland Got Talent Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira