Iniesta: Bikarinn mun bjarga tímabilinu | El Clásico í beinni á Stöð 2 Sport Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. apríl 2014 18:45 Iniesta og félagar þurfa sigur til að bjarga tímabilinu. Vísir/Getty
Það verður boðið upp á El Clásico annað kvöld þegar spænsku stórliðin og erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid mætast í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins á Mestalla-vellinum í Valencia.Stöð 2 Sport hefur gengið frá kaupum á leiknum og verður hann í beinni útsendingu annað kvöld. Útsendingin hefst klukkan 19.30. Þetta gæti verið eini möguleiki Barcelona á titli á þessu tímabili en það dróst aftur úr í titilbaráttunni í deildinni um helgina þegar það tapaði óvænt fyrir Granada. Þá er liðið úr leik í Meistaradeildinni. „Ég er sannfærður um að við getum unnið bikarinn en við þurfum að spila okkar besta leik gegn öflugum mótherja,“ segir Andrés Iniesta, leikmaður Barcelona, við spænska íþróttablaðið Sport. „Við getum spilað vel og unnið. Að vinna bikarinn myndi gleðja stuðningsmennina og líklega bjarga tímabilinu. Það breytir samt engu fyrir liðið að vinna bikarinn. Við höfum tekið skref aftur á bak í deildinni og erum úr leik í Meistaradeildinni.“ „Við getum enn unnið deildina og bikarinn en svo þurfum við bara að gera það upp í sumar hvort þetta hafi verið gott tímabil eða slæmt,“ segir Andrés Iniesta. Þegar Barcelona og Real Madrid mættust á Bernabéu á dögunum var boðið til veislu en Börsungar höfðu þá betur í sjö marka leik eins og sjá má hér.
Spænski boltinn Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Markvörður Eista meiddur Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjá meira