Fótbolti

Guð­laugur Victor lagði upp mark í stór­sigri í Íslendingaslag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson var kátur eftir leikinn í dag.
Guðlaugur Victor Pálsson var kátur eftir leikinn í dag. EPA/JOSE SENA GOULAO

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í AC Horsens voru í miklu stuði í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Horsens vann 5-1 heimasigur á Sönderjyske í fyrsta sigri sínum síðan 16. september.

Guðlaugur Victor átti mjög flottan leik í hægri bakverðinum og lagði upp þriðja mark síns liðs í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Markið skoraði Julius Madsen sem var með tvö mörk í leiknum.

Hér fyrir neðan má sjá markið og Madsen fara til íslenska landsliðsmannsins og þakka fyrir sendinguna.

Horsens var 3-1 yfir í hálfleik en Brynjar Ingi Bjarnason kom inn á sem varamaður í vörn Sönderjyske í síðari hálfleik en kom ekki í veg fyrir að heimamenn bættu við tveimur mörkum.

Horsens er í sjötta sæti deildarinnar en Sönderjyske situr í botnsætinu. Þetta var langþráður sigur hjá Guðlaugi Victori og félögum eftir þrjú jafntefli í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×