Fótbolti

Varð marka­hæstur í deildinni gegn bróður sínum.

Andri Broddason skrifar
Brynjólfur er orðinn markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar.
Brynjólfur er orðinn markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar. ANP via Getty Images

Brynjólfur Willumsson skoraði bæði mörk Groningen þegar liðið heimsótti NEC í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli en Bryjólfur fékk ekki að spila gegn bróður sínum.

Brynjólfur var ekki lengi að koma sér á blað fyrir Groningen en hann kom liðinu yfir strax á elleftu mínútu. Það tók hann svo rúmlega 20 mínútur til viðbótar að bæta við öðru marki og tvöfalda forystu gestanna.

Seinni hálfleikurinn var þó ekki alveg jafn góður hjá Groningen og komst NEC almennilega í leikinn. Á endanum náði liðið að jafna metin með mörkum frá Clement Bischoff og Noe Lebreton.

Brynjólfur hefur eflaust verið svekktur yfir að hafa ekki náð sigri þrátt fyrir að skora tvö mörk en mögulega er hann enn svekktari yfir að fá ekki að spila gegn bróður sínum. Willum Willumsson gekk til liðs við NEC á síðasta tímabili en hann hefur ekki spilað mikið upp á síðkastið. Hann hefur eflaust gert allt sem hann gat til þess að geta mætt bróður sínum en það gekk ekki.

Með þessum mörkum er Brynjólfur markahæsti leikmaður deildarinnar með átta mörk þegar tíunda umferðin er aðeins hálfnuð. Hann er búinn að skora átta mörk en Søren Tengstedt, leikmaður Go Ahead Eagles, hefur einnig skorað átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×