Fótbolti

Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir um­deilt mark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo hefur skorað 982 mörk á ferlinum samkvæmt sádíarabísku deildinni.
Cristiano Ronaldo hefur skorað 982 mörk á ferlinum samkvæmt sádíarabísku deildinni. Getty/Abdullah Ahmed

Hann fagnaði markinu eins og hann ætti það en sumar tölfræðiskýrslur segja allt aðra sögu. Cristiano Ronaldo er að eltast við þúsund mörk og þá skiptir hvert einasta mark máli. Ronaldo vill nú eigna sér umdeilt mark í sigri Al Nassr á Al Faisaly á föstudaginn.

Ronaldo taldi sig vera að fagna 982. marki ferils síns í 3-1 sigri Al Nassr á Al Faisaly í sádiarabísku úrvalsdeildinni en markið var skráð sjálfsmark hjá sumum.

Hinn 41 árs gamli leikmaður stökk hæst eftir aukaspyrnu João Félix en óljóst var hvort hann hefði náð greinilegri snertingu á boltann með höfðinu áður en boltinn fór af Andrei Girotto, varnarmanni Al Faisaly, og í netið. Ronaldo hljóp burt til að fagna og tók sitt heimsþekkta „siu“-fagn.

Sádiarabíska úrvalsdeildin hefur reyndar skráð markið á Ronaldo, af því að dómarinn skráði það á hann og benti um leið á að hann vanti nú átján mörk til að ná þeim merka áfanga að skora þúsund mörk á ferlinum. 

Alþjóðlega tölfræðiveitan Opta hefur þó síðan úrskurðað að um sjálfsmark hafi verið að ræða sem og aðrar erlendar úrslitaþjónustur.

Eftir leikinn birti Ronaldo mynd á Instagram af sér að fagna markinu með yfirskriftinni: „Áfram nú!“

Markið kom Al Nassr í 2-0 á 49. mínútu eftir að Abdullah Al-Hamdan hafði komið liðinu snemma yfir. Ângelo Gabriel bætti við þriðja markinu undir lokin eftir að Théo Bongonda hafði minnkað muninn fyrir heimamenn.

Ronaldo var dæmdur í 30 daga bann og sektaður um 255 evrur í vikunni eftir að hann yfirgaf landsliðið fyrr í mánuðinum í kjölfar deilu við Jorge Jesus aðalþjálfara. Upphæðin er smámunir fyrir hann og portúgalska landsliðið spilar ekki einn leik á þessum þrjátíu dögum.

Sigur Al Nassr hjálpaði liðinu að halda í við Al Qadsiah og Al Hilal í baráttunni um titilinn og var áttundi deildarsigur liðsins á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×