Viðskipti erlent

Stór tæknifyrirtæki sameinast gegn Heartbleed

Samúel Karl Ólason skrifar
Facebook, Google og Microsoft eru meðal tæknifyrirtækja sem hafa sameinast til að koma í veg fyrir að annar galli eins og Heartbleed komi upp. Tólf fyrirtæki standa að verkefninu og hafa þau stofnað sjóð, sem hvert fyrirtæki mun leggja 100 þúsund dali á ári í.

Fyrsta verkefnið sem sjóðurinn, sem hlotið hefur nafnið Core Infrastructure Initiative, hefur lagt fjármagn til lítils fyrirtækis sem hannaði OpenSSL, en það forrit olli Heartbleed gallanum og um 66 prósent af allri umferð á internetinu keyrir á því forriti.

Frá þessu er sagt á vefnum Mashable.

„Við viljum gera sönnum listamönnum, eins og hönnuðum OpenSLL, kleyft að einbeita sér að störfum sínum að fullu,“ sagði Jim Zemlin, yfirmaður hjá Linux sjóðinum, sem sér um CII sjóðinn. Hann segir einnig að honum hafi reynst einstaklega auðvelt að sannfæra forsvarsmenn fyrirtækjanna að því að koma að stofnun sjóðsins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×