Barkley segir konurnar í San Antonio vera feitar 22. maí 2014 13:30 Strigakjafturinn Barkley gefur ekkert eftir. vísir/getty
Charles Barkley, fyrrum körfuboltagoðsögn og nú sjónvarpsmaður, er búinn að gera allt vitlaust í San Antonio með ummælum sem hann lét falla í sjónvarpinu á dögunum. Hann hefur lengi átt í útistöðum við stuðningsmenn San Antonio Spurs og mun líklega eiga í útistöðum við þá næstu árin miðað við nýjustu ummælin. "Það eru alvöru stórar konur þarna í borginni. Borgin er gullnáma fyrir einkaþjálfara enda nóg af væntanlegum viðskiptavinum. Victoria er algjört leyndarmál í borginni enda komast konurnar ekki í Victoria's Secret nærföt þarna," sagði Barkley óhræddur við að æsa menn upp eins og áður. Eins og búast mátti við reiddust margir út af þessum ummælum. Stjörnur í borginni og meira að segja kærasta Tim Duncan hafa látið hann heyra það út af þessum ummælum. Barkley hefur þó engan áhuga á því að biðjast afsökunar. "Það vita allir sem vilja að ég var bara að grínast. Ef ykkur finnst ég ekki vera fyndinn þá megið þið bara slökkva á sjónvarpinu. Ég er ekkert að fara að breyta mér," sagði Barkley klettharður. Hann var einmitt í San Antonio í gær að fjalla um leik Spurs og Oklahoma. Áhorfendur létu hann heldur betur heyra það. "Ég er ekki viss um að allir í sjónvarpinu heyri að fólkið er að öskra á mig að ég sé ömurlegur. Ég vil að þau viti að mér finnst þau líka ömurleg."
NBA Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira