Umfjöllun: Finnland - Ísland 20-29 | Stelpurnar gerðu sitt en fara ekki á EM Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. júní 2014 12:44 Vísir/Valgarður
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fer ekki á EM 2014 í Ungverjalandi og Króatíu þrátt fyrir sigur á slöku liði Finnlands, 29-20, í leik liðanna ytra í dag. Slóvakar náðu á sama tíma í stig gegn Frökkum á heimavelli og eru því þremur stigum á undan okkar stelpum þegar aðeins einn leikur er eftir. Getumunurinn var algjör á liðum Íslands og Finnlands í dag en Ísland var tólf mörkum yfir í hálfleik, 18-6. Sóknarleikur Finna gekk afar illa og þá var Íris Björk Símonardóttir með 66 prósent markvörslu eftir fyrri hálfleikinn. Íslensku stelpurnar þurfu lítið að hafa fyrir hlutunum og náðu mest sextán marka forskoti, 28-12, eftir 46 mínútna leik. Heimakonur sóttu þó í sig veðrið undir lok seinni hálfleik og minnkuðu muninn niður í níu mörk. Ísland skoraði ekki mark síðustu tíu mínúturnar.Hildigunnur Einarsdóttir og nýliðinn Steinunn Hansdóttir voru markahæstar hjá Íslandi með fimm mörk og Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði fjögur mörk. Íris Björk varði 17 skot í markinu. Mikil spenna var í leik Slóvakíu og Frakklands en eftir að Slóvakar komust yfir, 20-17, skoraði Frakkland þrjú mörk í röð og jafnaði leikinn. Í stöðunni 24-24 fór Frakkland í sókn en tapaði boltanum. Slóvakar héldu út, náðu í stig og tryggðu sér sæti á EM í desember. Þetta þýðir að leikur Íslands og Slóvakíu í Laugardalshöllinni á sunnudaginn skiptir engu fyrir okkar stelpur.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira