Sá fyrsti í NBA af indverskum ættum er 2,26 metrar á hæð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2014 23:00 Sim Bhullar. Vísir/Getty
Sacramento Kings samdi um helgina við miðherjann Sim Bhullar sem varð um leið fyrsti leikmaðurinn af indverskum ættum til að semja við NBA-lið. Sim Bhullar fær tækifæri til að vinna sér sæti í liði Sacramento Kings í vetur en til þess þarf hann að sanna sig í æfingabúðum félagsins. Sim Bhullar er 21 árs gamall og enginn smásmíði. Hann er 2,26 metrar á hæð og yfir 160 kíló á þyngd. Foreldrar Sim Bhullar fluttu til Kanada frá Punjab-fylki á Indlandi og miðherjinn er með kanadískt ríkisfang. Bhullar er fæddur Ontario-fylki í Kanada en spilaði tvö tímabil með New Mexico State háskólanum þar sem hann var með 10,2 stig, 7,2 fráköst og 2,9 varin skot á meðaltali í leik. „Ég hef alltat trúað því að Indland sé næsta ónumda svæði fyrir NBA-deildina og með því að fá til okkar hæfileikaríkan leikmann eins og Sim ætti aðeins að ýta undir vöxt körfuboltans á þessu svæði," sagði Vivek Ranadive, eigandi Sacramento Kings, eftir að hann samdi við Sim Bhullar.Vísir/GettyVísir/GettyVísir/Getty
NBA Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira