Ríkislögreglustjóri braut lög þegar hann réð frænku ráðherra Kjartan Atli Kjartansson skrifar 23. október 2014 16:18 Ráðning Birnu var brot á jafnréttislögum.
Kærunefnd jafnréttismála telur að Ríkislögreglustjóri hafi brotið lög um jafnan rétt kvenna og karla þegar hann skipaði Birnu Guðmundsdóttur í starf lögreglufulltrúa hjá Lögregluskóla ríkisins í febrúar á þessu ári. Ríkislögreglustjóri rökstuddi ráðninguna með því að vísa í jafnréttislög. En í umsögn Lögregluskóla ríkisins kom fram að þrír karlmenn væru taldir hæfari en konan sem var ráðin. Einn mannana þriggja kærði málið til kærunefndarinnar og mun nú, eftir að úrskurður liggur fyrir, íhuga ásamt lögmanni sínum hvort að farið verði með málið fyrir dómstóla. DV fjallaði um ráðninguna á sínum tíma og benti á tengsl konunnar, sem heitir Birna Guðmundsdóttir við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, en þær eru systkinabörn. Í úrskurði kærunefndarinnar segir meðal annars að svo virðist sem ríkislögreglustjóri hafi ekki borið umsækjendur saman á heildstæðan hátt.Taldi framhjá sér gengið Í kæru mannsins sem taldi fram hjá sér gengið kemur fram að starfið hafi verið auglýst þann 3. desember 2013. Í auglýsingunni kom fram að í starfinu fælust eftirfarandi verkefni: „Annast skipulagningu og framkvæmd starfsþróunarnámskeiða fyrir lögreglumenn og eftir atvikum aðra starfsmenn lögreglunnar og því væri reynsla af verkefnastjórnun góður kostur, einnig kennsla tiltekinna námskeiða og að sinna verkefnum í grunnnámsdeild eða öðrum verkefnum innan stofnunarinnar.“ Hæfniskröfur voru einnig teknar fram í auglýsingunni, eins og segir í greinargerð kærunefndarinnar: „Próf frá Lögregluskóla ríkisins, tveggja ára starfsreynsla sem lögreglumaður, góð fagleg þekking á málefnum lögreglunnar, gott vald á íslensku, góð almenn tölvukunnátta, góð enskukunnátta nauðsynleg og tök á að minnsta kosti einu Norðurlandamáli. Kennaramenntun, reynsla af fjarkennslu eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfinu var talin góður kostur ásamt reynslu af þjálfun eða kennslu.“Fjórtán ára víðtæk reynsla Maðurinn var einn þeirra sem sótti um starfið og var í hópi sextán umsækjenda sem uppfylltu hæfniskröfur. Í úrskurði kærunefndarinnar kemur fram að hann hafi fjórtán ára reynslu af löggæslu að starfsreynsla hans sé víðtæk. Hann hafi yfirgripsmikla þekkingu, menntun og reynslu á sviði alvarlegra brota, skipulagðar brotastarfsemi, skipulagi lögreglurannsókna og í yfirheyrslum, er kemur fram í úrskurðinum. Jafnframt hefur maðurinn setið ellefu sérhæfð námskeið og haft umsjón með yfirgripsmiklum verkefnum sem snúa að löggæslu. Þegar hann sótti um starfið var hann búinn með fjögurra ára nám í lögfræði auk þess sem hann var með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði. Hann var á forsetalista Háskólans í Reykjavík og útskrifaðist með hæstu einkunn í lögfræði í HR í janúar 2013. Birna hafði fjögurra ára starfsreynslu auk þess sem hún hafði lokið MSc.-prófi í réttarsálfræði frá háskóla í Englandi. Ríkislögreglustjóri segir að ein af ástæðum þess að Birna hafi verið ráðin sé að skólastjóri lögregluskólans sé lögfræðingur að mennt og taldi ríkislögreglustjóri það betri viðbót í starfslið skólans að fá manneskju með M.Sc.-próf í réttarsálfræði. Einnig tók hann fram að Birna hefði reynslu af vísindarannsóknum og notkun sálfræði við rannsókn brota úr meistaranámi í réttarsálfræði og sagði að lögregluskólinn væri vettvangur rannsókna í lögreglufræðum.Ekki hægt að vísa í jafnréttislögMaðurinn taldi að ekki væri hægt að vísa í jafnréttislög því hann og Birna væru ekki jafn hæf. Kærunefnd jafnréttismála féllst á þetta sjónarmið. Í niðurstöðu úrskurðar hennar segir að markmið jafnréttislaganna sé „að koma á og viðahlda jafnrétti og og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum safmélagsins. Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laganna er atvinnurekendum óheimilt að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli kyns.“ Kærunefndin telur að starfsreynsla mannsins hafi verið talsvert lengri og fjölbreyttari en Birnu. Lögregluskóli ríkisins sendi ríkislögreglustjóra ítarlega og rökstudda umsókn um hvaða umsækjendur þóttu hæfa starfseminni. Þar var Birna ekki á lista. „Nálgun kærða [ríkislögreglustjóra] sýnist af þessu hafa verið mjög ólík þeirri sem Lögregluskóli ríkisins beitti. Þrátt fyrir þennan framgangsmáta verður ekki séð að kærði hafi borið umsækjendur saman á neinn heildstæðan hátt með tilliti til viðmiða sem hann taldi rétt að leggja til grundvallar og ekki voru meðal áhersluatriða stjórnar lögregluskólans og hefur hann raunar ekki haldið því fram að svo hafi verið,“ segir í úrskurðinum. Þar segir einnig að ríkislögreglustjóri hafi rökstutt skipun konunnar út frá kynferði og „staðhæft að hún hafi verið jafnhæf kæranda án þess að heildstæður samanburður hafi legið fyrir í þeim efnum. Af þessum sökum og með vísan til þeirra ástæðna sem raktar eru að framan telur kærunefnd að kærði [ríkislögreglustjóri] hafi ekki sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi ráðið skipun í stöðu lögreglufulltrúa umrætt sinn.“ Manninum voru dæmdar þrjú hundruð þúsund krónur í málskostnað. Úrskurðir kærunefndarinnar eru endanlegir á þessu stigi málsins. Sveinn Andri Sveinsson er lögmaður mannsins. Hann segir að nú verði skoðað hvort að farið verði með málið fyrir dómstóla. „Ég mun skoða framhaldið með mínum umbjóðanda.“
Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Fleiri fréttir Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sjá meira