Fíkniefnalögreglan ekkert haft samband við mæðginin Stefán Árni Pálsson skrifar 17. nóvember 2014 10:54 Lóa Pind og Guðrún Jóna voru gestir þáttarins Í bítið á Bylgjunni í morgun. vísir „
Við ræddum við tvo unga menn sem báðir hafa fengið krabbamein, hann Ásgeir, sem aðstoðaði Guðrúnu og Sigurð. Hann telur sig hafa læknað sig af krabbameini í hálsi,“ segir Lóa Pind, einn af umsjónamönnum þáttarins Brestir, en hún var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun ásamt og Guðrúnu Jónu Sæmundsdóttur, sem á dreng sem notað hefur kannabis til að lina þjáningar. Sonur Guðrúnar er Sigurður Jóns Súddason sem einnig var til umfjöllunar í þætti Bresta fyrir viku þegar fréttaskýringaþátturinn fjallaði um mögulegan lækningamátt kannabis við krabbameini.Sjá einnig: Sannfærður um að kannabis hafi lækningamátt Rætt var við Ásgeir Daða Rúnarsson sem hefur sjálfur nýtt sér kannabis í baráttu sinni við krabbamein. Einnig var talað við Sigurð sem greindist með heilaæxli í fyrra. Hann notar kannabis í þeirri von um að læknast af krabbameininu. Ásgeir hefur aðstoðað Sigurð og Guðrúnu við að útbúa sérstaka kannabisolíu sem hefur dregið verulega úr þjáningu Sigurðar. Ásgeir Daði.vísir„Ásgeir fór í allar meðferðir sem læknar hans höfðu mælt með og því vitum við ekkert í raun hvaða áhrifa kannabis hafði í því ferli. Sigurður Jón hefur notað kannabis og það hefur allavega slegið á hausverki. Æxlið er ennþá á sínum stað en það var blaðra í kringum æxlið sem var alltaf að fyllast af vökva og hefur ekki verið að gera það núna,“ segir Lóa Pind. „Staðan er enn sú sama. Hann er að fara í myndatöku í byrjun desember og þá vitum við kannski aðeins meira, hvort einhver breyting hafi orðið þar á. Það er rétt að krabbameinið er á sínum stað,“ segir Guðrún Jóna. „Þegar verkirnir hurfu og hann fór aftur að koma til sjálfs síns, þá vakti það upp vonir að líkaminn fengi þá frið til að lækna sig. Það er alveg klárt að lífsgæði Sigurðar jukust til muna við það að nota kannabis. Höfuðverkurinn hvarf alveg og hann hefur einfaldlega ekki fengið höfuðverk síðan að hann byrjaði að taka kannabisolíu. Orkan hans hefur smá saman verið að koma til baka og þetta er allt annað.“ Lóa Pind segir að kannabis hafi í raun lítið verið rannsakað þar sem það hefur verið ólöglegt í vestrænum ríkjum á undanförnum áratugum. David Nutt.vísir„David Nutt, sem við ræddum við í þættinum, er virtur vísindamaður í þessum geira og fyrrverandi aðalráðgjafi breskra stjórnvalda í vímuefnamálum, en hann vildi á sínum tíma færa kannabis neðar í flokkun og ekki setja efnið í sama flokk og kókaín og heróín önnur harðari efni. Hann var síðar rekinn fyrir að hafa mjög ákveðnar skoðanir í þessum málum. Nutt vill meina að kannabis hafi ekki það skaðleg áhrif á fólk.“ Lóa segir að geðlæknar haldi því aftur á móti fram að kannabis hafi mikil áhrif á geðræna kvilla fólks. Guðrún segir að fleiri hafi leitað til Ásgeirs eftir að þátturinn fór í loftið og í þeirri von um að fá aðstoð við að lina þjáningar. „Fíkniefnalögreglan hefur ekkert haft samband við mig eftir að þátturinn fór í loftið,“ segir Guðrún Jóna. Stofnaður hefur verið Facebook hópur undir yfirskriftinni „Ég styð Ásgeir Daða og rétt hans til að hjálpa fólki.“
Brestir Tengdar fréttir „Ef ég er að gera rangt með því að hjálpa fólki, þá verður bara að hafa það“ Fjallað var um sögu Ásgeirs Daða Rúnarssonar í Brestum í gærkvöldi og hvernig hann hefur nýtt sér lækningamátt kannabis í baráttu sinni við krabbamein. 11. nóvember 2014 12:26 Sérfræðingar ósammála: „Kannabis veldur ekki geðklofa“ Fræðimenn eru ekki á alls kostar sammála um það hvort kannabis hafi skaðleg áhrif á fólk. 11. nóvember 2014 14:34 Heilaskurðlæknir um áhrif kannabisolíu: „Það er sama hvaðan gott kemur“ Í gær fjallaði fréttaskýringaþátturinn Brestir um mögulegan lækningamátt kannabis við krabbameini. 11. nóvember 2014 13:27 Vill vita hvort ráðherra geti leyft kannabis í lækningaskyni Jón Þór Ólafsson pírati vill vita hvort það þurfi að breyta lögum til að heimila læknum að ávísa kannabis í lækningaskyni. 13. nóvember 2014 10:10 Brýtur lög til að hjálpa syni sínum Kafað verður ofan í deiluna um kannabis í lækningaskyni í fjórða þætti Bresta sem sýndur verður á mánudagskvöld. 9. nóvember 2014 13:46 Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira
„Ef ég er að gera rangt með því að hjálpa fólki, þá verður bara að hafa það“ Fjallað var um sögu Ásgeirs Daða Rúnarssonar í Brestum í gærkvöldi og hvernig hann hefur nýtt sér lækningamátt kannabis í baráttu sinni við krabbamein. 11. nóvember 2014 12:26
Sérfræðingar ósammála: „Kannabis veldur ekki geðklofa“ Fræðimenn eru ekki á alls kostar sammála um það hvort kannabis hafi skaðleg áhrif á fólk. 11. nóvember 2014 14:34
Heilaskurðlæknir um áhrif kannabisolíu: „Það er sama hvaðan gott kemur“ Í gær fjallaði fréttaskýringaþátturinn Brestir um mögulegan lækningamátt kannabis við krabbameini. 11. nóvember 2014 13:27
Vill vita hvort ráðherra geti leyft kannabis í lækningaskyni Jón Þór Ólafsson pírati vill vita hvort það þurfi að breyta lögum til að heimila læknum að ávísa kannabis í lækningaskyni. 13. nóvember 2014 10:10
Brýtur lög til að hjálpa syni sínum Kafað verður ofan í deiluna um kannabis í lækningaskyni í fjórða þætti Bresta sem sýndur verður á mánudagskvöld. 9. nóvember 2014 13:46