Love öflugur í sigri Cleveland | Hörmungargengi Philadelphia heldur áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2014 10:55 Kevin Love skoraði 28 stig í sigri Cleveland í nótt. vísir/afp
Þreföld tvenna frá Michael Carter-Williams (18-10-16) dugði Philadelphia 76ers ekki til sigurs gegn Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þrátt fyrir að hafa tapað frákastabaráttunni með afgerandi hætti tókst Dallas að knýja fram sigur, 110-103, en liðið er í 6. sæti Vesturdeildarinnar. Ekkert gengur hins vegar hjá Philadelphia sem hefur tapað öllum 16 leikjum sínum á tímabilinu. Kevin Love skoraði 28 stig og tók tíu fráköst þegar Cleveland Cavaliers vann tólf stiga sigur, 109-97, á Indiana Pacers á útivelli. Kyrie Irving var sömuleiðis öflugur í liði Cleveland með 24 stig, tíu fráköst og fimm stoðsendingar. LeBron James bætti 19 stigum og sjö stoðsendingum við. David West var stigahæstur hjá Indiana með 14 stig, en hann lék sinn fyrsta leik á tímabilinu í nótt. Gott gengi Houston Rockets á útivelli heldur áfram en í nótt vann Texas-liðið góðan sigur á Milwaukee Bucks, 117-103. James Harden átti flottan leik með 34 stig, sex fráköst og átta stoðsendingar, en Dwight Howard lék ekki með Houston í nótt vegna meiðsla. Nýliðinn Jabari Parker var atkvæðamestur hjá Milwaukee með 19 stig og níu fráköst.Úrslitin í nótt: Dallas Mavericks 110-103 Philadelphia 76ers New Orleans Pelicans 80-83 Washington Wizards Charlotte Hornets 75-105 Atlanta Hawks Indiana Pacers 97-109 Cleveland Cavaliers Los Angeles Clippers 112-96 Utah Jazz Houston Rockets 117-103 Milwaukee BucksJames Harden átti flottan leik fyrir Houston Michael Carter-Williams gerði sitt fyrir lánlaust lið Philadelphia Frábær sending hjá Kyrie Irving
NBA Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira