Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - ÍR 31-22 | Eyjamenn áfram í bikarnum Guðmundur Tómas Sigfússon í Vestmannaeyjum skrifar 10. desember 2014 10:36 Eyjamaðurinn Einar Sverrisson sækir að marki ÍR. Vísir/Valli
Eyjamenn eru komnir áfram í Coca Cola-bikarnum eftir öruggan níu marka sigur á ÍR-ingum, 31-22. Sigurinn var aldrei í hættu því Eyjamenn spiluðu vel allan leikinn. Grétar Þór Eyþórsson var potturinn og pannan í Eyjaliðinu en hann skoraði átta mörk úr átta skotum. Eyjamenn þurftu að spila leikinn án Sindra Haraldssonar sem er að glíma við meiðsli. Það vóg þó létt á móti heillri stuðningsmannasveit Eyjamanna, sem hefur sjaldan verið sterkari. Þegar fimmtán mínútur voru til leiks hófu strákarnir að syngja og gerðu það allt til síðustu mínútu en þeir héldu uppi gríðarlegri stemningu á pöllunum. ÍR-ingar tóku forystuna í byrjun en þeir héldu henni ekki lengi og tóku Eyjamenn þá undirtökin og héldu þeim út allan leikinn eftir að þeir skoruðu fjögur mörk í röð. Markaskorið dreifðist mjög mikið í upphafi leiks en engin eigingirni var í heimaliðinu. Maðurinn í besta færinu var nánast alltaf fundinn og því mikið af auðveldum mörkum sem litu dagsins ljós. Eyjamenn hafa nú endurheimt Agnar Smára Jónsson en hann lék ótrúlega vel í kvöld. Þeir hafa því mikla breidd fyrir utan og geta rúllað á fimm til sex leikmönnum án þess að það bitni á spilamennsku liðsins. Þeir voru komnir í fimm marka forystu þegar lítið var eftir af fyrri hálfleik en þá kom 4-0 kafli hjá ÍR-ingum og því aftur komin spenna í leikinn. Theodór Sigurbjörnsson átti góðan leik en hann kom Eyjamönnum í tveggja marka forystu rétt áður en fyrri hálfleik lauk. Björgvin Hólmgeirsson átti slakan fyrri hálfleik en skoraði fyrsta markið í þeim síðari og ÍR-ingar því aldeilis í góðri stöðu eftir að hafa lent mörgum mörkum undir í fyrri hálfleiknum. Þá kom hinsvegar frábær kafli hjá heimamönnum sem skoruðu sex mörk gegn engu og sneru taflinu við. Það leið ekki langur tími þangað til að Eyjamenn voru komnir með níu marka forystu og fór fólk þá að heyra brekkusöngva úr herbúðum Hvítu Riddaranna. Grétar Þór Eyþórsson, leikmaður ÍBV, var svo sannarlega potturinn og pannan í varnarleik þeirra en hann átti frábæran síðari hálfleik þar sem hann skoraði hvert markið á fætur öðru úr hraðaupphlaupum. Leikmenn ÍR-inga virtust ekki nenna að bakka í vörn og voru hraðaupphlaupin því nokkuð auðveld. Síðustu tvö mörk Eyjamanna voru frábær en þá fékk Hákon Daði Styrmisson, ungur hornamaður þeirra, sendingar sem hann greip í loftinu og skilaði boltanum í netið. Sigurinn kemur Eyjamönnum í 8-liða úrslitin en það er fyrsta skrefið í áttina að titlinum sem Eyjamenn ætla að sækja. ÍR-ingar eru þó skildir eftir með sárt ennið en þeir komust í úrslitaleikinn á síðustu leiktíð.Bjarni Fritzson: Þeir voru tilbúnir að berjast fyrir þessu „Ég er ekki sáttur. Við erum aldrei í takt við leikinn. Fyrri hálfleikurinn er samt jafn eftir að við náum góðri syrpu í lok fyrri hálfleiks,“ sagði Bjarni Fritzson, svekktur þjálfari ÍR-inga, eftir tap í 16-liða úrslitum bikarsins í Vestmannaeyjum. „Í seinni hálfleik goðnum við alveg niður og þeir þruma á okkur hraðaupphlaupum og pakka okkur saman. Við vorum að leysa vörnina þeirra illa og vorum að vinna varnarvinnuna að hálfum hug.“ „Það var eins og þeim hafi langað þetta svo miklu meira heldur en okkur og voru tilbúnir að berjast fyrir þessu. Á meðan við vorum bara að lalla í gegnum þetta fannst mér,“ sagði Bjarni mjög ósáttur með sína stráka. ÍR-ingar hafa sigrað Eyjamenn tvisvar í vetur og hlýtur maður að velta því fyrir sér hvað sé frábrugðið þessum leik og hinum tveimur. „Þessi leikur er frábrugðinn öllum þeim leikjum sem við höfum spilað í vetur því að menn voru ekki að gefa sitt í þetta. Það var ekki þessi baráttuvilji, vinnusemi, sigurvilji og gleði sem hefur einkennt okkur í vetur.“ „Við þurfum alltaf að spila okkar besta til þess að eiga möguleika til að vinna leiki. Í dag vorum við langt frá því enda skíttöpuðum við.“Gunnar Magnússon: ÍBV 2 óskamótherji í febrúar „Ég er virkilega ánægður með strákana í dag, varnarleikurinn var stórkostlegur og Kolli var frábær þar fyrir aftan,“ sagði Gunnar Magnússon eftir stórsigur á ÍR-ingum í Coca Cola bikarnum. „Sóknarleikurinn var agaður og árangursríkur, hraðaupphlaupin voru góð og við vorum fljótir að refsa fyrir mistökin. Stemningin í húsinu var stórkostleg og minnti á gömlu góðu dagana hér í vor,“ sagði Gunnar en Hvítu Riddararnir voru frábærir í dag líkt og aðrir áhorfendur í húsinu. Á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik stungu Eyjamenn af, Gunnar var augljóslega ánægður með það. „Við skelltum í lás, vörnin small og Kolli þar fyrir aftan tók líka boltana. Þeir sáu ekki til sólar og við refsuðum í hröðum upphlaupum. Liðsheildin var stórkostleg, það var sama hver kom inn á það skiluðu allir sínu.“ Eyjamenn hafa eins og áður segir tapað tvívegis fyrir ÍR-ingum í vetur en Gunnar sagði að þeir hefðu tekið þá leiki og nýtt þá til þess að læra af þeim. Þeir fundu greinilega út hvernig þeir ætluðu að loka á sóknarleikinn og opna vörnina. „Við ætlum okkur auðvitað í höllina. Við vonum að ÍBV 2 fái sigur á föstudaginn og þá verður það óskamótherji í febrúar, það yrði stórkostlegt.“
Íslenski handboltinn Mest lesið Opnaði sig um skilnaðinn og erfiða tíma Sport Trump fær blóðugan bardaga í Hvíta húsinu í afmælisgjöf Sport Arnar Gunnlaugs segir gagnrýnendur Liverpool gleyma mannlega þættinum Enski boltinn Bjarni Guðjóns tók einn KR-ing sérstaklega fyrir Íslenski boltinn Niðurbrotin Eygló keppir ekki á HM Sport „Hættiði að horfa á klám og hættiði að runka ykkur“ Sport UEFA grætur niðurstöðuna en gefur grænt ljós Fótbolti Gleðin í klefanum hjá nýju Íslandsmeisturunum Íslenski boltinn „Þá er búið að yfirtaka sál félagsins“ Enski boltinn Stólarnir komust ekki heim og æfa í Grindavík fyrir stórleikinn Sport Fleiri fréttir Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum Sjá meira