Lítið sem ekkert upp í 21,4 milljarða króna gjaldþrot útgerðarfélags Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. desember 2014 16:07 Útgerðarfélagið Jakob Valgeir ehf gerir út frá Bolungarvík. Vísir/Pjetur
Skiptum er lokið í þrotabú útgerðarfélagsins S44 ehf sem áður hét JV ehf. Félagið hélt utan um útgerð feðganna Jakobs Valgeirs Flogasonar og Flosa Valgeirs Jakobssonar. Félagið hætti rekstri í lok janúar 2009 og seldi bæði skip og aflaheimildir. Það var svo úrskurðað gjaldþrota 14. september 2012. Lýstar kröfur í þrotabúið voru upp á 21,4 milljarð króna, 12,6 milljónir greiddust upp í veðkröfur og 84,5 milljónir upp í almennar kröfur. Ekkert fékkst greitt upp í eftirstæðar kröfur. RÚV greinir frá og vísar í upplýsingar á vef Lögbirtingablaðsins.Slitastjórnir Glitnis og gamla Landsbankans kröfðust þess að fá greitt úr þrotabúinu en nú er ljóst að ekkert hefur fengist upp í þær kröfur. Þá stefndi slitastjórn Glitnis Jakobi Valgeiri auk fjögurra annarra vegna 725 milljóna króna láns sem Glitnir veitti félaginu Stím í janúar 2008. Jakob gegndi stjórnarformennsku í félaginu. Þá hefur héraðsdómur til meðferðar mál sérstaks saksóknara á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, einum stjórnenda bankans og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Saga Capital, vegna 20 milljarða króna láns sem Glitnir veitti Stím til hlutabréfakaupa í Glitni og FL Group í nóvember 2007. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group. Glitnir var sjálfur seljandi bréfanna sem Stím keypti og lögðu hluthafarnir einnig fram tæplega 5 milljarða króna eiginfjárframlag vegna kaupanna á bréfunum. Jakob Valgeir er sem kunnugt er einn eigenda útgerðarfélagsins Jakobs Valgeirs ehf í Bolungarvík.
Stím málið Tengdar fréttir Þorvaldur segir ákæruna vera létti fyrir sig Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson segist vera létt að ákæra hafi loksins verið gefin út í Stím málinu, enda hafi hann gegnt stöðu sakbornings í þrjú og hálft ár. 12. febrúar 2014 21:27 Glitnir stefnir Jakobi Valgeiri - vilja 300 milljónir út af Stím Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson upplýsir á bloggi sínu á Pressunni að lögmannstofan Lex hafi kært hann til siðanefndar Lögmannafélags Íslands fyrir hótanir. 16. mars 2013 16:47 Stofnuðu leynifélag til að kaupa hlutabréf í FL Group Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason ákváðu á leynifundi í október í fyrrahaust að stofna leynifélagið FS37 sem síðar varð Stím, og kaupa bréf í FL Group til að halda uppi gengi bréfanna sem höfðu hríðfallið. Glitnir fjármagnaði kaupin án nokkurra ábyrgða. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu í dag. Dylgjur og slúður segir Jón Ásgeir. 23. nóvember 2008 12:26 Glitnir lánaði Glitni til að kaupa bréf Glitnis í Glitni og FL Group Gamli Glitnir átti þriðjung í félaginu Stím sem var búið til kringum fjárfestingar í bankanum sjálfum og FL-Group. Bréfin sem Stím keypti í Glitni og FL-Group keypti það að mestu leyti af Glitni sjálfum og fyrir lán sem það fékk frá Glitni. 29. nóvember 2008 19:58 Stím-málið: Telja að vitni hafi samið við ákæruvaldið Kröfu Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, þess efnis að fá aðgang að gögnum sérstaks saksóknara og vitna í Stím-málinu svokallaða var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 13. nóvember 2014 11:54 Ákærðir fyrir umboðssvik Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, einn stjórnenda bankans, og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Saga Capital, fyrir umboðssvik. 15. febrúar 2014 14:43 Segir Stím ekkert leynifélag Jakob Valgeir Flosason, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Stíms sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna umfjöllunar um félagið og hann. Hann segir félagið ekki leynifélag, og að afar frjálslega hafi verið farið með staðreyndir í umfjöllun um félagið og persónu sína. 29. nóvember 2008 15:25 Jakob Valgeir Flosason greiðir hæstu gjöldin á Vestfjörðum Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður í Bolungarvík, greiðir hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjóra Vestfjarðaumdæmis samkvæmt álagningarskrá sem birt var í morgun. Jakob Valgeir greiðir rúmar 34,4 milljónir króna en Sigurður Guðjónsson, Þingeyri greiðir tæpar 28,4 milljónir króna. Einar Guðmundsson, Bolungarvík, greiðir rúmar 24 milljónir króna. 31. júlí 2007 10:17 Þrír ákærðir í Stím málinu Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, Jóhannesi Baldurssyni og Lárusi Welding. 12. febrúar 2014 19:25 Enginn kannst við leynifélagið Stím Enginn kannast við hver sé á bak við leynifélagið Stím. Félagið fékk milljarðatugi að láni hjá Glitni. Hluthafar voru hafðir að fíflum, segir formaður fjárfesta. 23. nóvember 2008 19:15 Mest lesið Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Viðskipti innlent Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Neytendur Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Neytendur Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar Neytendur Linkedin sektað um tugi milljarða Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Aukning í ferðalögum til landsins Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Akademias tekur yfir rekstur Avia Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Engin tilkynning um hópuppsögn í október Sjá meira
Þorvaldur segir ákæruna vera létti fyrir sig Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson segist vera létt að ákæra hafi loksins verið gefin út í Stím málinu, enda hafi hann gegnt stöðu sakbornings í þrjú og hálft ár. 12. febrúar 2014 21:27
Glitnir stefnir Jakobi Valgeiri - vilja 300 milljónir út af Stím Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson upplýsir á bloggi sínu á Pressunni að lögmannstofan Lex hafi kært hann til siðanefndar Lögmannafélags Íslands fyrir hótanir. 16. mars 2013 16:47
Stofnuðu leynifélag til að kaupa hlutabréf í FL Group Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason ákváðu á leynifundi í október í fyrrahaust að stofna leynifélagið FS37 sem síðar varð Stím, og kaupa bréf í FL Group til að halda uppi gengi bréfanna sem höfðu hríðfallið. Glitnir fjármagnaði kaupin án nokkurra ábyrgða. Þetta kemur fram í fréttaskýringu Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðinu í dag. Dylgjur og slúður segir Jón Ásgeir. 23. nóvember 2008 12:26
Glitnir lánaði Glitni til að kaupa bréf Glitnis í Glitni og FL Group Gamli Glitnir átti þriðjung í félaginu Stím sem var búið til kringum fjárfestingar í bankanum sjálfum og FL-Group. Bréfin sem Stím keypti í Glitni og FL-Group keypti það að mestu leyti af Glitni sjálfum og fyrir lán sem það fékk frá Glitni. 29. nóvember 2008 19:58
Stím-málið: Telja að vitni hafi samið við ákæruvaldið Kröfu Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, þess efnis að fá aðgang að gögnum sérstaks saksóknara og vitna í Stím-málinu svokallaða var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 13. nóvember 2014 11:54
Ákærðir fyrir umboðssvik Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, einn stjórnenda bankans, og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Saga Capital, fyrir umboðssvik. 15. febrúar 2014 14:43
Segir Stím ekkert leynifélag Jakob Valgeir Flosason, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Stíms sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna umfjöllunar um félagið og hann. Hann segir félagið ekki leynifélag, og að afar frjálslega hafi verið farið með staðreyndir í umfjöllun um félagið og persónu sína. 29. nóvember 2008 15:25
Jakob Valgeir Flosason greiðir hæstu gjöldin á Vestfjörðum Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður í Bolungarvík, greiðir hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjóra Vestfjarðaumdæmis samkvæmt álagningarskrá sem birt var í morgun. Jakob Valgeir greiðir rúmar 34,4 milljónir króna en Sigurður Guðjónsson, Þingeyri greiðir tæpar 28,4 milljónir króna. Einar Guðmundsson, Bolungarvík, greiðir rúmar 24 milljónir króna. 31. júlí 2007 10:17
Þrír ákærðir í Stím málinu Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, Jóhannesi Baldurssyni og Lárusi Welding. 12. febrúar 2014 19:25
Enginn kannst við leynifélagið Stím Enginn kannast við hver sé á bak við leynifélagið Stím. Félagið fékk milljarðatugi að láni hjá Glitni. Hluthafar voru hafðir að fíflum, segir formaður fjárfesta. 23. nóvember 2008 19:15