Báru líkkistu mótmælanda Freyr Bjarnason skrifar 27. janúar 2014 07:00 Stjórnarandstæðingar halda á kistu manns sem lést í mótmælunumn í síðustu viku. vísir/AP
Þúsundir Úkraínumanna hrópuðu „Hetja!“ og sungu þjóðsönginn þegar líkkista manns sem lést í síðustu viku í mótmælum gegn stjórnvöldum, var borin um miðborg Kænugarðs.Mikhail Zhiznevsky, 25 ára, var einn þriggja mótmælenda sem lést í átökum við lögregluna. Mótmælin í Úkraínu héldu áfram í gær þrátt fyrir tillögu forsetans Viktors Janúkóvíts um að stjórnarandstöðuleiðtogar yrðu gerðir að forsætis- og varaforsætisráðherra. Stór hópur mótmælenda réðst til atlögu á stærsta sýningar- og ráðstefnuhús Kænugarðar, köstuðu þangað eldsprengjum og skutu flugeldum. Lögreglan svaraði með táragasi.Arsení Jatsenjúk, fyrrverandi utanríkisráðherra Úkraínu, sem reyndi að færa þjóðina nær inngöngu í Evrópusambandið, sagði hópi mótmælenda á aðaltorgi Kænugarðs að Janúkóvíts forseti yrði að gangast við helstu kröfum stjórnarandstöðunnar og að viðræður myndu halda áfram. Stjórnarandstaðan hafnaði tillögu hans um að stjórnarandstöðuleiðtogar yrðu gerðir að forsætis- og varaforsætisráðherra. Hún krefst þess að stjórnvöld geri fríverslunarsamning við Evrópusambandið, leysi pólitíska fanga úr haldi og að haldnar verði forsetakosningar sem allra fyrst.
Úkraína Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira