Skoðun

Kerfisbreyting er bezta tækifærið

Ólafur Þ. Stephensen skrifar
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í þættinum Í bítið á Bylgjunni í fyrradag að hægt væri að réttlæta að hækka laun kennara umfram almennar launabreytingar með því að breyta skólakerfinu og stytta nám til stúdentsprófs. Sambærilegar tillögur eru hluti af tilboði ríkisins til lausnar kjaradeilunni við framhaldsskólakennara.

Forystumenn kennara hafa tekið þessum áformum illa. Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, sagði til dæmis í samtali við DV, að það væri „ósæmilegt að bera slíka hluti inn á borð í kjarasamningsviðræðum“.

En af hverju er það ósæmilegt? Er þessi leið ekki einmitt tækifærið til að hækka laun kennara, sem vissulega eru of lág? Staðan á vinnumarkaðnum og í fjármálum hins opinbera bendir ekki til að önnur leið sé fær.

Á almenna vinnumarkaðnum féllust samtök launþega á að semja um hóflegar launahækkanir gegn því að verðbólgunni yrði haldið í skefjum. Ef laun opinberra starfsmanna hækka langt umfram það sem þar var samið um er árangrinum í hættu stefnt.

Hvorki ríkið né sveitarfélög eiga heldur peninga til að hækka laun starfsmanna sinna umfram það sem gerist á almenna markaðnum. Eigi að vera hægt að hækka laun kennara, hvort heldur er í grunn- eða framhaldsskólum, þarf að breyta skólakerfinu, stytta námið og spara peninga.

Einhver kann að spyrja hvort það sé framkvæmanlegt. Já, flest bendir til þess. Ísland rekur dýrara skólakerfi en mörg vestræn ríki, án þess að það skili betri árangri. Grunnskólinn hefur lengzt um ár, auk þess sem skólaárið lengdist, án þess að nemendurnir kunni meira þegar þeir hafa lokið honum. Nám til stúdentsprófs tekur 14 ár í stað 12 eða 13 í flestum OECD-löndum. Við getum ekki leyft okkur slíka sóun á tíma og peningum.

Það er þess vegna hreint ekki ósæmilegt að ræða kjör framhaldsskólakennara í samhengi við breytingar á skólakerfinu. Ef eitthvað er getur þurft að setja málið í enn víðara samhengi, því að það er ekki hægt að ráðast í styttingu framhaldsskólans án þess að taka það með í reikninginn að óskilvirknin er meiri á grunnskólastiginu en í framhaldsskólum.

Raunar er fjöldi fordæma frá almenna vinnumarkaðnum um að hægt hafi verið að hækka laun í einstökum fyrirtækjum eða starfsgreinum umfram almennar launabreytingar með því að semja um breytingar á vinnufyrirkomulagi sem skiluðu aukinni framleiðni. Það er hægt að gera í skólakerfinu líka; þar gilda í grunninn ekki önnur lögmál.

Stytting náms til stúdentsprófs mun aldrei eiga sér stað öðruvísi en í góðu samstarfi stjórnvalda og starfsfólks skólanna, kennara þar með talinna. Vandséð er af hverju þessi kerfisbreyting ætti ekki að vera keppikefli kennarastéttarinnar, sem hlýtur að leggja metnað sinn í að reka hagkvæmt og skilvirkt skólakerfi. Og það ætti að vera alveg sérstakur hvati til samstarfs um kerfisbreytingu að í henni felst bezta tækifærið til að bæta kjör kennara við núverandi aðstæður.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×