Barist um rússnesku landamærin ingvar haraldsson skrifar 12. júlí 2014 10:00 Úkraínski herinn hefur verið í mikilli sókn undanfarið. nordicphots/afp
Uppreisnarmenn í Úkraínu skutu í gær flugskeytum á úkraínska hermenn í Austur-Úkraínu þar sem nítján féllu. Þar að auki féllu fjórir hermenn í öðrum árásum. Petró Pórósjenkó, forseti Úkraínu, hefur heitið hefndum fyrir aðgerðirnar. „Fyrir líf hvers hermanns munu uppreisnarmennirnir gjalda með tugum eða hundruðum lífa,“ sagði Pórósjenkó. Hermennirnir sem féllu voru að reyna að ná eftirlitsstöðvum við landamærin við Rússland á sitt vald. Uppreisnarmenn stýra flutningum yfir hluta landamæranna við Rússland. Frá Rússlandi hafa uppreisnarmennirnir fengið vopn og vistir og því hefur herinn reynt að ná aftur stjórn á landamærunum. Úkraínski herinn hefur verið í mikilli sókn undanfarið. Uppreisnarmenn hafa tapað um helmingi þess landsvæðis sem þeir höfðu undir sinni stjórn fyrir tveimur vikum. Um helgina náði úkraínski herinn borginni Slovyansk, einu af helstu vígjum uppreisnarmanna. Uppreisnarmenn hafa nú hörfað til iðnaðarborgarinnar Donetsk, tæplega hundrað kílómetra suður af Slovyansk. Úkraínski herinn hefur gefið út að öllum samgönguleiðum til og frá borginni verði lokað. Milli þrjátíu og sjötíu þúsund manns hafa þegar yfirgefið borgina.
Úkraína Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira