Slæmar fréttir fyrir Alfreð? | Danny Ings í viðræðum við Sociedad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2015 10:00 David Moyes skammar hér Alfreð Finnbogason í leik Real Sociedad á dögunum. Vísir/EPA
Danny Ings, framherji Burnley, er byrjaður í viðræðum við spænska úrvalsdeildarfélagið Real Sociedad ef marka má heimildir Daily Mail en enska blaðið segir frá þessu í morgun. Real Sociedad keypti íslenska landsliðsmanninn Alfreð Finnbogason síðasta sumar en okkar maður hefur ekki enn náð að skora í spænsku deildinni og þjálfarinn David Moyes er greinilega farinn að horfa í kringum sig til að styrkja sóknarleik liðsins. Danny Ings hefur skorað níu mörk fyrir Burnley á tímabilinu og stóð sig mjög vel á móti Manchester United í síðustu viku. Það er vitað að David Moyes hefur lengi verið hrifinn af enska framherjanum og Moyes virðist jafnframt ekki hafa mikla trú á íslenska landsliðsframherjanum. Þessar fréttir gætu því þýtt það að Alfreð sé á útleið hjá Real Sociedad næsta sumar en hann hefur verið út í kuldanum hjá Moyes og markaleysið er heldur ekki að hjálpa til. Danny Ings hefur verið að spila með 21 árs landsliði Englendinga en menn eru farnir að spá því að hann fái tækifæri með A-landsliðinu á næstu mánuðum. Daily Mail telur að Moyes ætli að reyna að ganga frá þessu sem fyrst áður en Ings verður enn eftirsóttari. Ings hefur verið orðaður við lið Liverpool en leikmaðurinn er nú að velta því fyrir sér að fara til Spánar samkvæmt heimildum Daily Mail.
Spænski boltinn Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Enski boltinn Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Enski boltinn Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Körfubolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Fleiri fréttir „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Sjá meira