LeBron afgreiddi toppliðið | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. febrúar 2015 08:15 LeBron James var óstöðvandi. vísir/epa
Cleveland Cavaliers er á miklum skriði í NBA-deildinni í körfubolta þessar vikurnar, en liðið vann 18. leikinn af síðustu 20 í nótt þegar það skellti toppliði deildarinnar, Golden State, 110-99, á heimavelli í nótt. LeBron James fór á kostum í leiknum og skoraði 42 stig auk þess se hann tók 11 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 3 boltum. Kyrie Irving bætti við 24 stigum og Kevin Love skoraði 16 stig og tók 8 fráköst. Stephen Curry, sem hefur að öðrum ólöstuðum verið besti leikmaður deildarinnar í vetur, náði sér aldrei almennilega á strik en skoraði þó 18 stig og gaf 6 stoðsendingar. Cleveland-liðið er í þriðja sæti austurdeiildarinnar eftir sigurinn í nótt með 36 sigra og 22 töp rétt eins og Chicago, en það nálgast nú Toronto í öðru sætinu. LeBron James í ham: Í hinum leik næturinnar vann Phoenix Suns mikilvægan sigur á Oklahoma City Thunder, 117-113, en þessi lið eru í harðri baráttu ásamt New Orleans um síðustu sætin í úrslitakeppninni. Allir byrjunarliðsmenn Phoenix áttu flottan leik en það skoruðu allir 12 stig eða meira. Stigahæstur var kraftframherjinn Markieff Morris sem skoraði 29 stig og tók 11 fráköst. Russell Westbrook, leikstjórnandi OKC, átti frábæran leik og hlóð í þrennu með 39 stigum, 14 fráköstum og 11 stoðsendingum. Það dugði þó ekki til fyrir Durant-lausa Thunder-menn. OKC er í áttunda sæti vestursins með 32 sigra og 25 töp, en New Orleans er 2,5 sigrum fyrir aftan og Phoenix 3,5 sigrum á eftir þrumunni.
NBA Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira