Gylfi: Gott að fá kallinn aftur í liðið Óskar Ófeigur Jónsson í Astana skrifar 28. mars 2015 18:28 Gylfi lagði upp annað mark Íslands. vísir/vilhelm
Gylfi Þór Sigurðsson var ánægður með frammistöðu Íslands í sigrinum á Kasakstan í Astana í dag. „Þetta var mjög fagmannlegur sigur, við vörðumst vel og skoruðum þrjú mörk,“ sagði Gylfi í samtali við Vísi eftir leikinn. „Við hefðum farið sáttir heim með 1-0 en að spila vel, skora þrjú mörk og halda hreinu var mjög gott,“ sagði Gylfi ennfremur. „Það var gott að skora snemma og það gaf okkur mikið sjálfstraust. Við fylgdum því svo vel eftir,“ sagði Swansea-maðurinn sem bjóst við Kasökunum grimmum í dag. „Við vissum að þeir myndu setja okkur undir pressu í byrjun, en ég held að þeir hafi misst trúna eftir fyrstu tvö mörkin. Eftir vorum við mjög rólegir og nýttum breidd vallarins vel. Það gerði þeim erfitt fyrir.“ Gylfi var ánægður með framlag Eiðs Smára Guðjohnsen sem skoraði fyrsta mark Íslands á 20. mínútu. „Það var gott að fá kallinn aftur inn í liðið. Hann býr yfir mikilli reynslu. Hann er með flottar hreyfingar og mjög klókur. Það er gott að spila boltanum á hann, því hann heldur honum svo vel. „Það er auðvelt að spila með góðum leikmönnum. Hann kemur sér alltaf í góða stöðu til að fá boltann í fyrsta,“ sagði Gylfi að lokum um félaga sinn.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Þróttur og HK á toppnum Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Langþráður og lífsnauðsynlegur sigur Þóris og félaga Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Gíraður í Reykjavíkurslag: „Hlaupum á Val á hundrað kílómetra hraða“ Sjáðu mörkin: Fyrsti sigur nýliðanna, endurkoma Þróttara og Stjarnan skein skært Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Skýr í svörum aðspurður um möguleika KR á Íslandsmeistaratitli Mistókst hrapallega að fá fulltrúa Ísraels og Palestínu saman á mynd Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Klúðraði þremur vítum og var síðan rændur sigurmarki Liðsfélagi Stefáns og Alfons kveikjan að risastóru dómsmáli Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Mainoo áfram í Manchester næstu árin Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Sjá meira