LeBron James: Ég missi aldrei trúna af því að ég er sá besti í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2015 11:00 LeBron James á blaðamannfundinum í nótt. Vísir/Getty
LeBron James hefur ekki stórar áhyggjur þótt að lið hans Cleveland Cavaliers sé komið 3-2 undir og sé aðeins einum tapleik frá því að missa NBA-meistaratitilinn til Golden State Warriors. James átti enn einn stórleikinn í nótt en það dugði ekki til þar sem að Golden State Warriors vann fimmta leikinn 104-91. „Ég missi aldrei trúna af því að ég er besti leikmaðurinn í heiminum," sagði LeBron James sem var með 40 stig, 14 fráköst og 11 stoðsendingar í leiknum í nótt. Þetta var annar tapleikurinn í seríunni þar sem 40 stiga leikur frá LeBron James var ekki nóg. LeBron James vísaði því til föðurhúsanna að taktíkin hjá Steve Kerr og lærisveinum hans væri að leyfa honum að skora. „Þeir eru ekki að leyfa mér að skora 40 stig. Ég fór út og náði í þessi 40 stig," sagði LeBron James sem er með 36,6 stig, 12,4 fráköst og 8,8 stoðsendingar að meðaltali í úrslitaeinvíginu. Cleveland Cavaliers komst í 2-1 í einvíginu en hefur núna tapað tveimur leikjum í röð. Það hefur verið allt annað að sjá lið Golden State Warriors í síðustu leikjum. „Leikur sex er á okkar heimavelli og við höfum nóg af vopnum í okkar liði til að vinna hann. Við þurfum að passa upp á heimavöllinn okkar og svo komum við aftur til Golden State. Við ætlum að einbeita okkur að þriðjudagskvöldinu fyrst. Við þurfum að verja heimavöllinn okkar eins og við getum og þá fáum við oddaleik," sagði James. LeBron James varð í nótt fyrsti leikmaðurinn frá 1969 (Jerry West) sem skorar 40 stig samhliða því að ná þrefaldri tvennu. Hér fyrir neðan má sjá myndbönd af Lebron James frá leiknum í nótt.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira