Hönnuður kýldi fyrirsætu baksviðs Rick Owens skrifar 29. júní 2015 10:00 Fyrirsæta Jera með miðann. Glamour/Getty
Uppnám var að sýningu Rick Owens á herratískuvikunni í París um helgina þegar fyrirsætan Jera ákvað að draga upp stóra hvítan miða á miðjum tískupallinum sem á stóð "Please kill Angela Merkel - not". Hönnuðurinn ku hafa orðið alveg brjálaður enda atvikið ekki tengt sýningunni á nokkurn hátt og var skiljanlega ennþá reiður þegar fjölmiðlar náðu af honum tali eftir sýninguna. "Þetta er stórskrýtið og alveg fáranlegt af fyrirsætunni sem ég kýldi um leið og hann kom af pallinum baksviðs," sagði Owens við WWD og bætti við: "Gerðu mér greiða og láttu koma fram að ég hafi kýlt hann." Tilkynning kom frá hönnuðinum og hans teymi stuttu eftir sýninguna þar sem þau sögðu miðann og það sem á honum stóð vera alfarið á ábyrgð fyrirsætunnar og þau hörmuðu atvikið. Rick Owens var allt annað en sáttur að sýningu lokinni.Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.
Mest lesið Tími buxnadragtarinnar er kominn! Glamour Geysir bætir við sig verslun á Skólavörðustíg Glamour Ekkert photoshop hjá ASOS Glamour Stjörnum prýdd afmælisveisla Lancôme Glamour Snoðuð Kate Hudson Glamour Litrík augu hjá Chanel Glamour Svalasta fótboltalið í heimi Glamour Ariana Grande fyrir MAC Glamour Arket frá H&M lofar góðu Glamour Þúsundir biðu eftir að sjá Kylie Jenner í New York Glamour