Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Til hamingju með daginn, Gulli!

Gunnleifur fagnar fertugsafmæli sínu í dag.
Gunnleifur fagnar fertugsafmæli sínu í dag. Vísir/Ernir
Ellefta umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttu nótunum.

KR, Breiðablik og Valur minnkuðu öll forystu FH á toppi deildarinnar en Hafnfirðingar misstigu sig á heimavelli gegn Fylki. Aðeins þrjú stig skilja að efstu fjögur liðin. Fjölnir og Stjarnan halda áfram að tapa leikjum en ÍA reif sig frá fallsvæðinu með mikilvægum sigri á ÍBV. Víkingur virðist í frjálsu falli og Leiknir og Keflavík máttu sætta sig við jafntefli í leik sem bæði lið þurftu að vinna.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

Stjarnan - Valur 1-2

ÍA - ÍBV 3-1

Víkingur - KR 0-3

FH - Fylkir 2-2

Leiknir - Keflavík 1-1

Breiðablik - Fjölnir 2-0

Vísir/Ernir
Góð umferð fyrir ...

... Gunnlaug Jónsson, þjálfara ÍA

Skagamenn þurftu sárlega á sigri að halda gegn ÍBV á heimavelli og eftir einkar slæma byrjun tókst þeim að snúa blaðinu algjörlega sér í vil og vinna afar sannfærandi 3-1 sigur. Gunnlaugur náði að svara áhyggjum af markaleysi Skagamanna vegna meiðsla Garðars Gunnlaugssonar og hefur Ásgeir Marteinsson blómstrað í síðustu leikjum. Arsenij Buinickij er líka búinn að skora í þremur leikjum í röð og farinn að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans.

... Þorstein Má Ragnarsson, sóknarmann KR

Staða Þorsteins Má hjá KR hefur verið til mikillar umræðu vegna takmarkaðra mínútufjölda sem hann fær með liðinu. Samkvæmt heimildum Vísis er hann með klásúlu í samningi sínum sem heimilar honum að fara frá KR í júlíglugganum og var talið víst að hann væri búinn að velja að semja við Breiðablik. Ekki dró koma Hólmberts Arons Friðjónssonar í KR úr þeim sögusögnum. En nú er Þorsteinn Már búinn að skora í tveimur leikjum í röð og var hann maður leiksins í 3-0 sigri KR og Víkingi. Eftir leik vildi hvorki hann né Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, viðurkenni að þetta hafi verið síðasti leikur Þorsteins Más með KR.

... Gunnleif Gunnleifsson

Damir Muminovic og Elfar Freyr Helgason halda áfram að fara fyrir sterkri vörn Breiðabliks sem hélt hreinu á heimavelli gegn Fjölni. Það sem þeir réðu ekki við afgreiddi hinn fertugi Gunnleifur Gunnleifsson í marki Blikanna fyrir þá. Gunnleifur heldur upp á fertugsafmælið sitt í dag og viðeigandi að hann hafi átt góðan leik í gær, rétt eins og svo oft áður í sumar. Til hamingju með daginn, Gulli!

Vísir/Andri Marinó
Erfið umferð fyrir ...

... Stjörnuna

Enn eitt tapið í þessari umferð og þau eru nú orðin samtals fjögur í síðustu sex leikjum. Íslandsmeistararnir eru einfaldlega í bullandi vandræðum en þrátt fyrir góða byrjun gegn Val þar sem Halldór Orri Sigurðsson skoraði draumamark datt allur botn úr leik liðsins og 2-1 tap niðurstaðan. „Það er erfitt að fá ekki stig og að vinna ekki heimaleik í fyrri umferðinni er ekki gott," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari, eftir leikinn. Orð að sönnu.

... Ólaf Þórðarson og Milos Milojevic

Evrópuvíkingarnir eru ei meir. Úr leik þrátt fyrir hetjulega baráttu í Slóveníu og það þarf miklu meira en kraftaverkið sem tryggði Víkingum Evrópusæti í fyrra til að endurtaka leikinn nú. Sex töp í síðustu sjö leikjum segir allt sem segja þarf. Staða þjálfaranna hlýtur að vera til skoðunar. Fyrst beindust spjótin að Ólafi eftir að Milos fór til Serbíu á þjálfaranámskeið en hlutirnir virðast ekkert hafa skánað eftir að sá síðarnefndi kom aftur heim.

... Guðjón Orra Sigurjónsson, markvörð ÍBV

Guðjón Orri hefur fengið langþráð tækifæri í marki ÍBV í sumar og þáttur hans í tapinu á Skipaskaga á sunnudagsvöld sé nokkur verður honum ekki eingöngu kennt um það. En hann gerði slæm mistök í leiknum sem gætu hafa kostað hann sætið í byrjunarliðinu. Abel Dhaira bíður fyrir utan og hann hefur minnt á sig með því að halda hreinu í öllum þremur bikarleikjum ÍBV til þessa í sumar.

Vísir/Ernir
Tölfræðin og sagan:

*Stjarnan er eina liðið í Pepsi-deildinni sem hefur ekki ennþá unnið heimaleik í sumar.

*Valsmenn hafa náð í 16 stig af 18 mögulegum út úr síðustu 6 leikjum liðsins í Pepsi-deildinni (5 sigrar og 1 jafntefli).

*Kristinn Freyr Sigurðsson hefur skorað sjálfur (2), átt stoðsendinguna (2) eða átt þátt í undirbúningnum (2) í 6 af síðustu 7 mörkum Valsmanna í Pepsi-deildinni.

*Valsmenn hafa aðeins tapað 1 af 12 leikjum sínum í Pepsi-deildinni (10) og Borgunarbikarnum (2) í sumar þar sem Thomas Guldborg Christensen hefur spilað í miðri vörn Valsmanna.

*Stjarnan hefur tapað síðustu 444 mínútum sínum í Pepsi-deild og Borgunarbikar á Samsung vellinum í Garðabæ með markatölunni 2-10.

*Valsmenn hafa lent 1-0 undir undanfarin þrjú sumar á móti Stjörnunni í Garðabæ en hafa samt fengið stig út úr öllum leikjunum.

*Skagamenn skoruðu 4 mörk í fyrstu 8 leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar en hafa skorað 9 mörk í síðustu 3 leikjum sínum.

*Eyjamenn hafa aðeins náð í 1 stig af 18 mögulegum á útivelli í Pepsi-deildinni í sumar.

*Skagamenn hafa skorað 9 af 13 mörkum sínum í Pepsi-deildinni í sumar í síðustu þremur leikjum sínum.

*Skagamenn hafa náð í 9 stig af 9 mögulegum í Pepsi-deildinni í sumar í "sex stiga" leikjum á móti Leikni, Keflavík og ÍBV.

*Skagamenn hafa unnið tvo síðustu leiki sína í Pepsi-deildinni þar sem að Marko Andelkovic hefur byrjað á varamannabekknum.

*Víðir Þorvarðarson, leikmaður númer 11 í ÍBV-liðinu, skoraði 11. mark ÍBV á tímabilinu á 11. mínútu í 11. umferð. :)

*KR-ingar hafa haldið marki sínu hreinu í þremur leikjum í röð í Pepsi-deildinni og ekki fengið á sig mark í 316 mínútur.

*Almarr Ormarsson hefur komið með beinum hætti að 4 mörkum í 4 leikjum (2 mörk og 2 stoðsendingar) síðan að hann fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði KR 15. júní.

*Víkingar skoruðu bara einu marki minna í fyrri umferð Pepsi-deildarinnar í ár (13) heldur en í fyrra (14) en fengu samt tíu stigum minna.

*Þorsteinn Már Ragnarsson er markahæsti leikmaður KR í Pepsi-deildinni í sumar þrátt fyrir að hafa spilað aðeins 56 prósent af mínútum í boði í leikjum liðsins.

*Fylkir er eina liðið í Pepsi-deildinni sem hefur ekki tapað á útivelli í sumar.

*FH fékk tvöfalt fleiri mörk á sig í fyrri umferð Pepsi-deildarinnar í ár (12) heldur en í fyrra (6).

*Hermann Hreiðarsson náði því í fyrsta leik sem þjálfari Fylkir sem Ásmundi Arnarssyni tókst aldrei á þremur og hálfu ári sem þjálfari Árbæjarliðsins eða að ná í stig á móti FH.

*Varamenn hafa skorað öll þrjú mörk Fylkis í síðustu tveimur leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.

*FH-liðið hefur aðeins náð að halda 1 sinni hreinu í síðustu 9 leikjum sínum í Pepsi-deildinni að það var á móti Víkingi.

*Ólafur Hrannar Kristjánsson hefur skorað (2) eða gefið stoðsendinguna (1) í 3 af síðustu 4 mörkum Leiknis í Pepsi-deildinni.

*Keflavíkurliðið hefur enn ekki náð að halda hreinu í Pepsi-deildinni í sumar.

*Hilmar Árni Halldórsson hefur átt þátt með einhverjum hætti í 11 af 12 mörkum Leiknisliðsins í Pepsi-deildinni í sumar.

*Keflavikurliðið hefur skorað í öllum fimm leikjunum undir stjórn Jóhanns B. Guðmundssonar og Hauks Inga Guðnasonar en skoraði bara í 3 af 6 leikjum undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar.

*Blikar hafa tapað fæstum stigum á heimavelli í sumar (2) af öllum tólf liðum Pepsi-deildarinnar.

*Fjölnir er búið að tapa öllum þremur leikjum sínum í Pepsi-deildinni síðan að liðið missti miðvörðinn Daniel Ivanovski.

*Markatala Fjölnis í síðustu 3 leikjum í Pepsi-deildinni er -6 (1-7) en var aftur á móti +7 (8-1) í 3 leikjum liðsins þar á undan.

*Oliver Sigurjónsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson eru áttundi og níundi leikmaðurinn sem skorar fyrir Breiðablik í Pepsi-deildinni í sumar.

*Breiðablik hefur ekki fengið á sig mark í fyrri hálfleik í 9 leikjum í röð í Pepsi-deildinni.

Vísir/Ernir
Skemmtilegir punkar úr Boltavaktinni:

Guðmundur Marinó Ingvarsson á Kaplakrikavelli:

„Allir áhorfendur stóðu upp og klöppuðu þegar Allan Borgvardt var kynntur sem heiðursgestur leiksins.“

Ingvi Þór Sæmundsson á Víkingsvelli:

„Skúli og Rasmus þurfa varla að fara í sturtu eftir leikinn. Þeir þurfa ekkert að hafa fyrir hlutunum og eru með Rolf Toft í vasanum. Ekki beint öflug innkoma hjá Dananum.“

Tómas Þór Þórðarson á Kópavogsvelli:

„Kópavogsdjúsinn frægi var eilítið vatnskenndur þannig kóngurinn á Kópavogsvelli, Magnús Valur Böðvarsson, sendi sína menn upp með þykknið og bætt var í könnuna. Algjör lúxus þjónusta.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Bjarni Ólafur Eiríksson, Val - 8

Arnþór Ingi Kristinsson, Víkingi - 3

Davíð Örn Atlason, Víkingi - 3

Þórarinn Ingi Valdimarsson, FH - 3

Umræðan á #pepsi365

Vísir/Valli
Mark 10. umferðar: Atvik 10. umferðar: Markasyrpa 10. umferðar:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×