Íslenski boltinn

Enn einn heimasigur Hauka

Haukar hafa unnið fjóra af fimm heimaleikjum sínum í sumar.
Haukar hafa unnið fjóra af fimm heimaleikjum sínum í sumar. vísir/daníel
Haukar unnu 2-0 sigur á HK á Ásvöllum í 11. umferð 1. deildar í kvöld.

Þetta var fjórði sigur Hauka í fimm heimaleikjum í sumar en þeir aðeins unnið einn leik á útivelli.

Zltako Krickic og Aron Jóhannsson skoruðu mörk Hauka með sjö mínútna millibili í seinni hálfleik.

Þetta var annað tap HK í röð en liðið hefur ollið miklum vonbrigðum í sumar. HK hefur tapað sjö af síðustu níu leikjum sínum og er aðeins fjórum stigum frá fallsæti.

Haukar eru hins vegar í 6. sæti með 16 stig.

Í hinum leik kvöldsins í 1. deildinni vann Selfoss óvæntan sigur á toppliði Þróttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×