Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: Allt á suðupunkti í Krikanum

Það var hart tekið á því í leik FH og KR.
Það var hart tekið á því í leik FH og KR. Vísir/Andri Marinó
Tólfta umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttu nótunum.

KR vann FH í stórleik umferðarinnar og fór á toppinn en Blikar misstigu sig gegn Fylki og í stað þess að fara upp í annað sæti misstu þeir Valsmenn, sem unnu Leikni og jöfnuðu FH-inga að stigum, upp fyrir sig og duttu þar með niður í fjórða sætið. Fjölnir tapaði fjórða leiknum í röð, nú fyrir ÍBV, og er nú jafnt Fylki að stigum í 5.-6. sæti. ÍBV fór úr fallsæti á kostnað Leiknis og er einu stigi á eftir Víkingi sem rústaði botnliði Keflavíkur, 7-1.

Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

Stjarnan - ÍA 1-1

ÍBV - Fjölnir 4-0

Víkingur - Keflavík 7-1

FH - KR 1-3

Breiðablik - Fylkir 0-1

Leiknir - Valur 0-1

Stuðningsmenn Víkings voru í sjöunda himni um helgina.Vísir/Andri Marinó
Góð umferð fyrir ...

... gluggamennina í Víkingi og ÍBV

Vladimir Tufegdzic. Leggið þetta nafn á minnið! Nei, svona í alvörunni. Athugaðu hvort þú getir lagt það á minnið. GDZ-maðurinn kom inn á á 58. mínútu, skoraði á 65. mínútu og lagði upp mörk á 68., 71., 80., og 85. mínútu. Svo voru það Eyjamennirnir Sito [Jose Enrique] og Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem skoruðu þrjú af fjórum mörkum ÍBV í 4-0 sigrinum á Fjölni. Þvílík innkoma í deildina.

... Gary Martin

Skildi maður ætla. Af hverju hætti hann við að fagna marki sínu? Hann var nýkominn inn á og á örfáum mínútum hafði hann átt stóran þátt í því að snúa 1-0 forystu FH á heimavelli í 2-1 forystu KR á einum sterkasta útivelli landsins. Hann lagði svo upp þriðja markið fyrir Óskar Örn Hauksson og hann má nú eiga það, Gary, að hann fagnaði því. Eftir leik sagðist hann ósáttur við að byrja ekki og ósáttur við að spila á kantinum. Öll augu berast nú að Gary eftir þessa uppákomu í Kaplakrika.

... Hermann Hreiðarsson

Fylkismenn skiptu um þjálfara eftir að hafa verið snýtt í bikarleik í Eyjum, 4-0. Fyrsta verk Hermanns, nýja þjálfarans, var að fara á Kaplakrikavöll og Kópavogsvöll. Þaðan kom hann með fjögur stig aftur heim í Árbæinn, sem verður að teljast ansi gott. Fylkismenn múruðu fyrir markið sitt í Kópavoginum og skoruðu sigurmarkið úr skyndisókn. Handrit leiksins var skrifað af Hermanni.

Vísir/Andri Marinó
Slæm umferð fyrir ...

... keflvískan varnarleik

Tvö neðstu lið deildarinnar mætast og annað liðið vinnur 7-1 sigur á hinu. Hvað segir það um stöðu tapliðsins? Keflvíkingar eru nú þegar einu sinni búnir að stokka upp á nýtt með þjálfarabreytingunni í byrjun júní. Flestir gera það bara einu sinni á tímabili. Þjálfararnir Haukur Ingi og Jóhann Birnir hafa að mörgu að huga en ætli fyrsta verk þeirra hljóti ekki að vera að gera að minnsta kosti tilraun til að laga varnarleik liðsins? Útlitið er orðið ansi dökkt suður með sjó.

... Ágúst Þór Gylfason

Fimm tapleikir í röð í deild og bikar. Markatala Fjölnis í fjórum síðustu deildarleikjum sínum er 1-11. OK, Daniel Ivanovski og Emil Pálsson eru eru farnir en er það í alvörunni eina skýringin á frjálsu falli liðsins? Fjölnismenn fá enn að stilla upp ellefu manna liði í leikjunum sínum og hafa fengið menn í glugganum. Ágúst þarf að fá sína menn til að líta í eigin barm ef ekki á illa að fara í seinni umferðinni.

... hafnfirska þolinmæði

„Það er ekkert launungamál að við misstum hausinn. En hvaða lið myndi ekki gera það með svona dómgæslu?“ Þetta sagði Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, eftir tapið gegn KR. FH-ingar voru rosalega pirraðir í leiknum og fannst þeir sviknir af dómgæslunni. Þeir töpuðu samt fótboltaleiknum. Voru þeir ekki sjálfum sér verstir þegar uppi var staðið? FH hefur að minnsta kosti spilað fjóra leiki í röð án sigurs og þeir verða að axla ábyrgð á því sjálfir.

Vísir/Andri Marinó
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Guðmundur Tómas Sigfússon á Hásteinsvelli (í hálfleik):

„Kolbeinn Arnarsson, markvörður bikarmeistara ÍBV, ætlar að lýsa Stjörnuleiknum þar sem rauða liðið leikur gegn því hvíta. Myndir af þessum leik má sjá inn á vef Eyjafrétta á næstu dögum.“

„Tíðindamikill leikur til þessa, við höfum fengið gult spjald fyrir dýfu. Ótrúlegar markvörslur, tvö mörk og pungskot. Staðan 1-1 og þó ekki nema nokkrar mínútur eftir.“

„Stefán Róbertsson, leikmaður rauða liðsins fullkomnaði þrennu sína rétt í þessu. Frábær vinstri fótarskot. Í hvíta liðinu er Yngvi Borgþórsson, fyrrum leikmaður ÍBV. Kristján Georgsson, betur þekktur sem Kiddi Gogga er í rauða liðinu.“

„Leiknum lauk með stórmeistarajafntefli 3-3. Allir eru sigurvegarar þegar svona snillingar eru að verki.“

„Allir leikmenn leiksins taka á móti bikarnum en þetta er fyrsti bikarinn sem fer á loft á Hásteinsvelli á þessari öld.“

Tryggvi Páll Tryggvason í Víkinni:

„Chuckwudi Chijindu aka CHUCK aka ItsChuckMate er mættur í byrjunarliðið hjá Keflavík.“

Tryggvi Páll Tryggvason í Víkinni:

„10 stig fyrir þann sem giskar á hver á stoðsendinguna.“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Kópavogsvelli:

„Hermann er afar líflegur á hliðarlínunni. Kvartar sáran undan einhverju og lætur Vilhjálm Alvar fjórða dómara heyra það. Róar sig strax og býður Vilhjálmi að gefa sér fimmu, sem dómarinn afþakkar pent.“

Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:

Vladimir Tufegdzic, Víkingi - 9

Hafsteinn Briem, ÍBV - 8

Ian Jeffs, ÍBV - 8

Aron Bjarnason, ÍBV - 8

Jose Enrique, ÍBV - 8

Ívar Örn Jónsson, Víkingi - 8

Hallgrímur Mar Steingrímsson, Víkingi - 8

Rolf Toft, Víkingi - 8

Agnar Darri Sverisson, Víkingi - 8

Pálmi Rafn Pálmason, KR - 8

Gary Martin, KR - 8

Tonci Radovinkovic, Fylki - 8

Orri Sigurður Ómarsson, Val - 8

Ásgeir Marteinsson, ÍA - 3

Arsenij Buinickij, ÍA - 3

Jonatan Neftali, Fjölni - 3

Kennie Chopart, Fjölni - 3

Aron Sigurðarson, Fjölni - 3

Mark Magee, Fjölni - 3

Sindri Snær Magnússon, Keflavík - 3

Umræðan á #pepsi365

Vísir/Andri Marinó
Mark 12. umferðar: Atvik 12. umferðar: Markasyrpa 12. umferðar:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×