Adidas býður Harden 27 milljarða samning Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2015 08:30 James Harden. Vísir/Getty
NBA-leikmaðurinn James Harden fær ekki bara há laun frá körfuboltafélaginu sínu Houston Rockets því stórir íþróttavöruframleiðendur keppast einnig um undirskrift hans. Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætli að reyna að stela Harden frá Nike með því að bjóða kappanum 200 milljón dollara fyrir þrettán ára samning. Það gera tæplega 27 milljarða íslenskra króna og gæti auðveldlega orðið meira en Harden fær fyrir að spila fyrir Houston Rockets á sama tíma. Samningur Harden og Nike var að renna út en Nike hefur fram til loka næstu viku til að bjóða honum samskonar samning. Fái Harden ekki svo gott tilboð frá Nike mun hann semja við Adidas. Harden skrifaði undir samning við Houston Rockets árið 2012 sem færir honum 80 milljón dollara fyrir að spila með liðinu út 2017-18 tímabilið. Adidas hefur verið aðalíþróttavöruframleiðandi NBA-deildarinnar en mun ekki endurnýja samning sinn við deildina og Nike mun taka við eftir 2016-17 tímabilið. NBA-deildin fékk 400 milljónir dollara frá Adidas fyrir ellefu ára samning og Harden er því að fá tilboð upp á helming þeirrar upphæðar. Þetta er því einstakt tilboð sem Harden er með í höndunum. James Harden átti frábært tímabil með Houston Rockets síðasta vetur, var stigahæsti leikmaður deildarinnar með 27,4 stig í leik og annar í kjörinu á besta leikmanni deildarinnar á eftir Stephen Curry. Leikmenn NBA-deildarinnar kusu hinsvegar James Harden besta leikmann tímabilsins en auk þess að skora 27,4 stig í leik þá var hann einnig með 7,0 stoðsendingar og 5,7 fráköst að meðaltali í leik. Harden er enn bara 25 ára gamall og á því sín allra bestu ár eftir í NBA-deildinni. Hann spilaði með Oklahoma City Thunder frá 2009 til 2012 en hefur spilað með Houston Rockets.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira