Íslenski boltinn

Ólafur Karl: Fínt að komast í burtu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur Karl skoraði þrjú mörk fyrir Stjörnuna í sumar.
Ólafur Karl skoraði þrjú mörk fyrir Stjörnuna í sumar. vísir/anton
Eins og frá var greint á Vísi fyrr í kvöld mun Stjörnumaðurinn Ólafur Karl Finsen klára tímabilið með Sandnes Ulf í norsku B-deildinni.

„Þetta er búið að vera í gangi í smá tíma núna,“ sagði Ólafur í samtali við Vísi nú rétt í þessu. En finnst honum þetta vera ánægjuleg lending í málinu?

„Já, já, ekkert þannig. Það var voða lítið annað í stöðunni,“ sagði Ólafur sem segir það ekki hafa verið á dagskránni hjá sér að fara út í atvinnumennsku en hann var á sínum tíma á mála hjá AZ Alkmaar í Hollandi áður en hann kom heim í Stjörnuna fyrir tímabilið 2010.

„Ég var alls ekkert að stefna að þessu. Þetta kom bara upp og ég var líka þrjóskur við að vilja fara. En þetta er þægilegur lánssamningur og svo er ekkert verra að fá peningana líka.“

Sandnes Ulf er í 2. sæti norsku B-deildarinnar og er í harðri baráttu um sæti í úrvalsdeildinni sem liðið féll úr í fyrra. Einn annar Íslendingur er á mála hjá félaginu, Ingvar Jónsson, sem Ólafur þekkir vel frá tíma þeirra saman í Stjörnunni.

„Við þekkjum hvor annan mjög vel og erum gott teymi,“ sagði Ólafur en veit hann hvaða væntingar eru til hans gerðar hjá nýja liðinu?

„Ætli maður eigi ekki að styrkja liðið til að komast upp í efstu deild,“ svaraði Ólafur sem heldur utan á fimmtudaginn.

Eftir frábært tímabil í fyrra, bæði hjá Ólafi sjálfum og Stjörnunni, hefur lítið gengið upp í ár. Stjarnan er sem stendur í 7. sæti Pepsi-deildarinnar með einungis 20 stig eftir 16 leiki.

Þrátt fyrir þetta slæma gengi segist Ólafur ekki vera að flýja af hólmi.

„Ég hefði alveg viljað vera áfram þótt það gangi illa en það var lítið annað í stöðunni fyrir mig.

„Svo er líka ágætt að komast í burtu. Það er mikið áreiti í gangi hérna og kannski fínt að fara í eitthvað krummaskuð þar sem enginn þekkir mann,“ sagði Ólafur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×